Ath.: Þessi vafri styður ekki
fyllilega CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna
útliti síðunnar.
[ Vafrar sem mælt er með
| Beint í meginmál ]
Blair á ráðstefnu Verkamannaflokksins í Gateshead í dag.
AP
Tveir árekstrar urðu á þjóðveginum milli Akraness og Borgarness í kvöld og var þjóðvegi eitt, þar sem hann liggur um Leirársveit, lokað um tíma vegna þeirra. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um árekstrana en að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var fólk flutt á sjúkrahús í Reykjavík eftir annan þeirra. Mikil hálka er á vegum á þessum slóðum.
Athygli sóttvarnalæknis hefur verið vakin á því að inflúensan í ár hafi valdið óvenju miklu álagi á heilbrigðisstofnanir og lagst þungt á vistmenn öldrunarstofnana í janúar á þessu ári. Þetta kemur fram í Farsóttarfréttum nýju fréttabréfi sóttvarnalæknis.
Lorie Kane og Dawn Coe-Jones frá Kanada deila efsta sætinu á heimsbikarmótinu í sveitakeppni kvenna í golfi með ítalska liðinu sem er skipað Giulia Sergas og Diana Luna. Kanadíska og ítalska sveitin eru á 7 undir pari eða 66 höggum. Keppnin fer fram á Fancourt vellinum í Suður-Afríku sem er hannaður af Gary P
Atvinnuleysi á landinu öllu var 3% í janúar síðastliðnum samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar og jókst um 0,3% frá desember en dróst hins vegar saman um 0,7% ef miðað er við janúar árið 2004.
Helgi Þór Arason, 18 ára Ísfirðingur, féll úr keppni í Idol stjörnuleit, sem Stöð 2 sendi beint út frá Smáralind í kvöld. Eru þá fimm keppendur eftir. Þátttakendurnir sungu lög í kvikmyndum í kvöld en boðað var að næsta föstudagskvöld verði sungin svonefnd big band-lög.
Íbúar í Virginíu-ríki í Bandaríkjunum sem vilja hafa buxur sínar svo lágt gyrtar, að sjáist í nærfötin, geta andað léttar. Ekkert verður af fyrirhuguðu banni við þessum stíl í klæðaburði sem ríkisþingið í Virginíu hugðist koma á.
Bandarísk hlutabréf hækkuðu í verði í viðskiptum dagsins í New York í dag. Dow Jones-talan hækkaði um 49,21 stig, eða 0,46% í 10.798.82 stig. Nasdaq-talan hækkaði um 23,70 stig eða 1.15% í 2.076,80 stig. Hlutabréf í Decode hækkuðu um 1,81% og enduðu þau í genginu 7,32 dölum.
Einar Örn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Wallau Massenheim þegar liðið vann HSV Hamburg, 33:31, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Jafnt var í hálfleik, 14:14, en sigur Wallau kom frekar á óvart þar sem Hamburg hefur verið með betri liðum deildarinnar á keppnistímabilinu en Wallau hefur átt misjöfnu gengi að fagna. Wallau getur öðru fremur þakkað markverði sínum, Zoran Djordjic, sigurinn. Hann varði vel á lokaspretti leiksins.
Drottningarmaurar sem eru kynferðislega virkir lifa lengur en maurar sömu tegundar sem hafa minni áhuga á mökun, að því er fram kemur í dansk-þýskri rannsókn sem birt var í dag. Þar segir að ástæðan fyrir þessu sé að í sæði karlmaura sé að finna prótein sem hafi „yngjandi“ áhrif.
Reykjavík
°
|
||
Akureyri | ° | |
Egilsst. | ° | |
London | 11° | |
K.höfn | 0° | |
New York | 3° | |
Velja borgir |
USD | 62.79 |
EUR | 80.77 |
GBP | 117.21 |
CAD | 50.54 |
DKK | 10.85 |
Ekki hika við að breyta ímynd þinni eða útliti í dag. Hvaðeina sem þú breytir verður til hins betra. Kannski drífur þú þig í klippingu.
Lottó 5.2.2005 | |||||
4 | 13 | 15 | 23 | 34 | 20 |
Jóker | |||||
5 | 6 | 1 | 6 | 1 | |
Áskrift á www.lotto.is | |||||
Birt án ábyrgðar |
Slóð: http://www.mbl.is//mm/frettir/index.html
Skoðað: 2005-02-12 00:36
© mbl.is/Árvakur hf
© mbl.is/Árvakur hf, 2005