Listi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hér er listi yfir lönd jarðar, raðað eftir stærð. Einnig er höfuðborg ríkisins tilgreind, sé hún nokkur. Stærðin er tilgreind í ferkílómetrum (km²) að meðtöldum ám, vötnum og uppistöðulónum. Athugið: Nokkrir listar yfir stærð landa eru í gangi og eru ekki sammála um stærð allra landa. Til dæmis er það á reiki hvort Kúba er talin stærri eða minni en Ísland. Þess vegna er Ísland á bilinu frá sæti 104 til númer 106 eftir því hvaða tafla er notuð.