Þessi grein er gæðagrein að mati notenda Wikipediu.

Ástralía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Samveldið Ástralía
Commonwealth of Australia
Fáni Ástralíu Skjaldamerki Ástralíu
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
„ekkert“
Þjóðsöngur:
Advance Australia Fair
Staðsetning Ástralíu
Höfuðborg Canberra
Opinbert tungumál
Stjórnarfar Þingbundin konungsstjórn
Elísabet 2.
Peter Cosgrove
Tony Abbott
Sjálfstæði
 - frá Bretlandi 3. mars 1986 (algjört) 
Flatarmál
 - Samtals
 - Vatn (%)
6. sæti
7.692.024 km²
1
Mannfjöldi
 - Samtals (2015)
 - Þéttleiki byggðar
51. sæti
23.764.300
2,8/km²
VLF (KMJ)
- Samtals
- á mann
áætl. 2014
1.100 millj. dala (19. sæti)
46.631 dalir (15. sæti)
VÞL (2013) Straight Line Steady.svg 0.933 (2. sæti)
Gjaldmiðill Dalur (AUD)
Tímabelti UTC +8 til +10
Keyrt er vinstri megin
Þjóðarlén .au
Landsnúmer 61

Ástralía eða Samveldið Ástralía (enska Commonwealth of Australia eða Australia) er land í heimsálfunni Eyjaálfu, sem einnig heitir Ástralía. Ástralía er eina ríki heims sem nær yfir heilt meginland. Landið er í Breska samveldinu og er drottning Bretlands, jafnframt drottning Ástralíu. Ástralía skiptist í sex fylki og tvö svæði, hvert með sína höfuðborg. Fjölmennasta borg Ástralíu er Sydney.

Nafnið[breyta | breyta frumkóða]

Alþjóðlega nafnið Ástralía er komið úr latneska orðinu australis sem þýðir suðrænt og hefur verið notað síðan að minnsta kosti á 2. öld yfir óþekkta heimsálfu í suðri (terra australis incognita). Breski landkönnuðurinn Matthew Flinders gaf meginlandinu nafnið Terra Australis en fyrir höfðu Hollendingar nefnt það Nova Hollandicus eða Nýja-Holland.

Flinders breytti nafninu í Ástralía (Australia á ensku) á korti sem hann lauk við árið 1804 þegar hann var í haldi Frakka á Máritíus. Þegar hann kom aftur heim til Englands árið 1814 og gaf út verk sín var hann neyddur af bresku flotastjórninni til að breyta nafninu aftur í Terra Australis. Það var svo árið 1824Lachlan Macquarie, landsstjóri Nýja Suður Wales náði að sannfæra flotastjórnina um að breyta nafninu opinberlega í Ástralía eftir að hafa gert sér grein fyrir að það væri það nafn sem Flinders líkaði best við.

Saga[breyta | breyta frumkóða]

Margar mismunandi kenningar eru uppi um það hvenær og hvernig fólk kom fyrst til Ástralíu. Þær kenningar sem vilja rekja mannvist þar lengst aftur halda fram að nútímamaðurinn hafi þróast þar. Þær kenningar njóta þó ekki mikillar hylli og er talið að besta áætlunin sé að fólk hafi komið þangað fyrst fyrir um 53.000 árum. Öruggar leifar um mannvist eru elstar 50.000 ára í Ástralíu. Lítið er vitað með vissu um sögu Ástralíu frá þeim tíma fram til þegar Evrópumenn komu þangað þar sem frumbyggjarnir þróuðu aldrei með sér ritmál. Portúgalar voru fyrstir Evrópumanna til að sjá heimsálfuna fyrir víst en könnun hófst ekki fyrr en á 17. öld. Fyrstir Evrópumanna til að setjast að í Ástralíu voru Bretar sem árið 1788 stofnuðu fanganýlendu þar sem nú er Sydney og um hana nýlenduna Nýja Suður Wales sem náði yfir allt meginland Ástralíu og Tasmaníu fyrir utan Vestur-Ástralíu. Í kjölfar útbreiðslu breskra byggðarlaga yfir hina nýju nýlendu, voru svo nýjar nýlendur klofnar frá til að mynda Tasmaníu (1825, en hún var þá kölluð Van Diemensland) Suður-Ástralíu (1836), Victoriu (1851) og Queensland (1859). Vestur-Ástralía varð bresk nýlenda árið 1829. Til að byrja með var þróun mjög hæg í hinum nýju nýlendum. Efnahagurinn byggðist aðallega á sauðfjárrækt og sölu afurða svo sem ullar. Árið 1851 uppgötvaðist hins vegar gull í Ástralíu og síðan þá hefur námagröftur verið meðal helstu atvinnuvega landsins. Upp frá því uxu borgirnar við suður- og austurstrendur landsins hratt, á tíma var Melbourne næst-stærsta borg breska heimsveldisins. Árið 1901 sameinuðust nýlendurnar sex í Samveldið Ástralíu, fullvalda ríki í konungssambandi við Bretland. Deilur risu hins vegar upp um hvar höfuðborg hins nýja samveldis skyldi vera (bæði Melbourne og Sydney gerðu tilkall til titilsins) en á endanum var sú ákvörðun tekin að Melbourne yrði höfuðborg þangað til Höfuðborgarsvæði Ástralíu yrði stofnað mitt á milli borganna tveggja. Það var gert árið 1911 og Samveldisþingið flutti þangað 1927.

Stjórnsýsla[breyta | breyta frumkóða]

Þinghúsið í Canberra.

Eins og fyrr hefur verið sagt, skiptist Ástralía í sjö megin stjórnsýsluumdæmi. Hvert og eitt þeirra hefur einhverja gerð af framkvæmda- löggjafar- og dómsvaldi. Þau eru svo öll undir sambærilegar stofnanir fyrir allt samveldið sett. Með löggjafarvaldið fer Samveldisþingið (enska: Commonwealth Parliament), framkvæmdavaldið eins konar ríkisráð (enska: Executive Council of Australia) og dómsvaldið Hæstiréttur Ástralíu (enska: High Court of Australia). Þessar stofnanir eru allar til húsa í Canberra.
Formlega er æðsti handhafi framkvæmdavalds í Ástralíu landsstjórinn (enska: Governor-General), sem er staðgengill drottningar í landinu. Í raun fer hins vegar ríkisstjórnin með vald hans. Ríkisstjórnin er valin af forsætisráðherranum, sem aftur er valinn af meirihluta þingsins (oftast leiðtogi stærsta flokksins). Forsætisráðherra Ástralíu nú (2014) er Tony Abbott. Landsstjórinn er Peter Cosgrove.
Með löggjafarvald fyrir Samveldið fer Samveldisþingið. Það skiptist í tvær deildir, fulltrúadeild og öldungadeild. Einnig telst drottningin formlega vera hluti þingsins. Í öldungadeildinni eiga sæti tólf fulltrúar frá hverju fylki, og tveir frá hvoru svæði (territory). Fulltrúadeildin hefur um tvöfalt fleiri eða 150 þingmenn. Samkvæmt stjórnarskrá hafa báðar deildirnar sömu möguleika til að leggja fram lagafrumvörp (fyrir utan þau sem snúa að ríkisfjármálum) og þurfa báðar deildir að samþykkja öll frumvörp áður en þau geta orðið að lögum. Samkvæmt venju eru langflest frumvörp þó lögð fram af ríkisstjórninni, og þar með í fulltrúadeild, en síðan samþykkt í öldungadeild.
Hæstiréttur Ástralíu er aðallega stjórnlagadómstóll, en líka efsta stigs áfrýjunardómstóll Ástralíu. Hann er skipaður sjö dómurum og forseti réttarins er Anthony Murray Gleeson.

Skipting í stjórnsýsluumdæmi[breyta | breyta frumkóða]

Kort sem sýnir landamæri ástralskra fylkja og svæða.

Ástralía samanstendur af sex fylkjum, sem eru aðilar að samveldinu, og nokkrum svæðum sem eru að hluta undir stjórn samveldisins en hafa þó mismikla sjálfstjórn. Öll fylkjanna eru á meginlandinu utan eitt, sem er Tasmanía. Tvö svæðana eru á meginlandinu, en hin ekki. Fylki Ástralíu eru eftirfarandi:

Einungis tvö svæðanna eru á meginlandi Ástralíu. Þau eru:

Svæðin sem eru ekki á meginlandinu eru:

Þrjú síðastnefndu svæðin eru því sem næst óbyggð og þau þrjú byggðu utan meginlandsins mjög fámenn.

Náttúra[breyta | breyta frumkóða]

Sökum einangrunar Ástralíu er náttúra hennar mjög sérstök. Hún er því sem næst eini staðurinn í heiminum, þar sem pokadýr búa villt og einnig þar sem eucalyptus-tré vaxa. Þegar Evrópubúar komu þangað fyrst, trúðu þeir ekki eigin augum, enda náttúran mjög ólík öllu því sem þeir áttu að venjast. Þegar þeir sáu breiðnefinn (enska: platypus) fyrst, trúðu engir þeim heima fyrir, þangað til náðist að fanga einstakling og senda hann til Evrópu. Breiðnefurinn og mjónefurinn eru nefnilega einu tvö spendýrin í heiminum, sem verpa eggjum, og breiðnefurinn hefur þar að auki gogg og sundfit. Eftir að Evrópumenn settust þar að, hafa ýmsar af þessum tegundum dáið út, þar sem þær áttu sér enga óvini í náttúrunni áður en maðurinn kom. Frægust þessara tegunda er Tasmaníutígurinn. Nú er hins vegar markvisst unnið að verndun innlendrar náttúru gagnvart utanaðkomandi áhrifum.

Lýðfræði[breyta | breyta frumkóða]

Ástralir eru flestir komnir af Evrópumönnum. Að hluta til af föngum, sem sendir voru þangað, og fangavörðum þeirra, en aðallega fólki sem fluttist þangað á 19. öld og upphafi þeirrar tuttugustu, þá einkum í tengslum við gullæðið. Aðeins eitt prósent Ástrala eru af frumbyggjum komnir, en þeim var markvisst fækkað þegar Evrópumenn fluttust þangað. Búa flestir frumbyggjar í Nýja Suður Wales og Queensland, en á strjálbýlli svæðum landsins eru einnig sérstök verndarlönd frumbyggja. Innan eins slíks er hinn frægi klettur Uluru (einnig þekktur sem Ayers-klettur). Sjö prósent Ástrala eru innflytjendur frá Asíu.
Um þrír fjórðu Ástrala eru kristnir, flestir tilheyra Biskupa- eða Kaþólsku kirkjunum með fjórðung hvor.

Menning og fjölmiðlar[breyta | breyta frumkóða]

Löngu áður en að Evrópumenn komu til Ástralíu var þar komin upp blómleg menning frumbyggja en með komu Evrópumanna náði þeirra menning yfirhöndinni, sem hún hefur haft æ síðan. Á undanförnum árum hefur þó verið lagt meira og meira upp úr menningu frumbyggja, þar sem þeirra hefðbundnu aðferðir við til dæmis tónlistar- og myndlistarsköpun eru gjörólík þeim Evrópsku. Evrópskættuð menning er þó enn, eins og fyrr segir, sterkust í Ástralíu og er einmitt mikil gróska þar í klassískri tónlist meðal annars með starfandi sinfóníuhljómsveit í hverri höfuðborg. Þaðan kemur líka mikið af dægurtónlistarflytjendum sem eru heimsfrægir, svo sem hljómsveitirnar Bee Gees og AC/DC eða hinar nýrri hljómsveitir Jet og The Vines. Kvikmyndagerð er mikil í Ástralíu, þó hún veki sjaldan heimsathygli. Nú til dags er Ástralía þó þekktust í kvikmyndaheiminum fyrir að vera vinsæll tökustaður og að þaðan koma margir leikarar sem síðan hafa slegið í gegn í Hollywood. Matarmenning Ástrala er komin af Evrópskum rótum, en hefur þróast í samræmi við loftslagið: Þar eru grill (Barbie, á áströlsku) mikilvægt menningarfyrirbæri og oft eru mikil matarboð látin snúast í kring um slíkt.

Í Ástralíu eru rekin fimm sjónvarpsstöðvanet sem ná yfir allt landið, þar af tvö ríkisrekin (ABC og SBS), og þrjú net áskriftarssjónvarpsstöðva, einnig yfir allt landið. Í öllum helstu borgum kemur út dagblað og tvö dagblöð koma út yfir allt landið, The Australian og The Australian Financial Review. Flestir prentmiðlar, þar á meðal öll helstu dagblöð, eru í eigu annaðhvort News Corporation (fyrirtækis Rupert Murdochs) eða fyrirtækja á vegum John Fairfax. Út af þessari fákeppni er Ástralía í 31. sæti á lista Fréttamanna án landamæra yfir frelsi blaðamanna.

Heimildir og Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]

  • Davison, Graeme, John Hirst og Stuart Macintyre (ritstj.). The Oxford Companion to Australian History. (Melbourne, Vic.: Oxford University Press, 1999).
  • Denoon, Donald o.fl. A History of Australia, New Zealand, and the Pacific. (Oxford: Blackwell, 2000).
  • Germaine, Max. Artists & Galleries of Australia. (Roseville, Vic.: Craftsman House, 1990).
  • Hughes, Robert. The Fatal Shore: The Epic of Australia's Founding. (Knopf, 1986).
  • Johnson, Vivien. Papunya Painting: Out of the Desert. (Canberra: National Museum of Australia, 2007).
  • Jupp, James. The Australian People: An Encyclopedia of the Nation, Its People, and Their Origins. (Cambridge: Cambridge University Press, 2001).
  • Macintyre, Stuart. A Concise History of Australia. (Cambridge: Cambridge University Press, 2000).
  • Powell J.M. An Historical Geography of Modern Australia: The Restive Fringe. (Cambridge: Cambridge University Press, 1988).
  • Robinson G.M., R.J. Loughran og P.J. Tranter. Australia and New Zealand: Economy, Society and Environment. (Oxford: Oxford University Press, 2000).
  • Smith, Bernard og Terry Smith. Australian painting 1788–1990. (Melbourne, Vic.: Oxford University Press, 1991).
  • Teo, Hsu-Ming og Richard White. Cultural History in Australia. (UNSW Press, 2003).

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist

erlendir



Áströlsk fylki, svæði og höfuðborgir: Fáni Ástralíu
Höfuðborgarsvæði Ástralíu Nýja Suður Wales Norður-svæðið Queensland Suður-Ástralía Tasmanía Victoria Vestur-Ástralía
Canberra Sydney Darwin Brisbane Adelaide Hobart Melbourne Perth
Norfolkeyja | Jólaeyja | Kókoseyjar | Kóralhafseyjasvæðið | Heard- og McDonaldeyjar | Ástralska suðurskautssvæðið