3. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
3. apríl er 93. dagur ársins (94. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 272 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1882 - Landshöfðingi tilkynnti að stofnuð yrði geymsla fyrir skjalasöfn æðstu embætta. Það varð grunnurinn að Þjóðskjalasafni Íslands.
- 1882 - Jesse James, útlagi í villta vestrinu, var skotinn í bakið og drepinn.
- 1948 - Harry S Truman, forseti Bandaríkjanna, skrifaði undir Marshall-áætlunina.
- 1968 - Martin Luther King yngri hélt fræga ræðu.
- 1969 - Hungurvaka var haldin í tvo sólarhringa í Menntaskólanum í Reykjavík til þess að vekja athygli á hungri í heiminum.
- 1974 - Alþingi lýsti Surtsey friðland.
- 1975 - Bobby Fischer neitaði að heyja heimsmeistaraeinvígi við Anatoly Karpov, og varð Karpov þar með heimsmeistari.
- 1984 - Banni við hundahaldi var aflétt í Reykjavík, en það hafði staðið síðan 1. september 1971.
- 1995 - Alríkislögregla Rússneska Sambandsríkisins stofnuð af Boris Yeltsin þáverandi forseta Rússlands.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1783 - Washington Irving, bandarískur rithöfundur (d. 1859).
- 1924 - Marlon Brando, leikari (d. 2004).
- 1924 - Doris Day, leikkona.
- 1930 - Helmut Kohl, stjórnmálamaður, kanslari Þýskalands frá 1982 til 1998.
- 1958 - Alec Baldwin, leikari.
- 1961 - Eddie Murphy, leikari.
- 1976 - Drew Shirley, bandarískur tónlistarmaður (Switchfoot)
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 963 - Vilhjálmur III. Hertogi af Akvitaníu.
- 1882 - Jesse James, útlagi í villta vestrinu.
- 1897 - Johannes Brahms, tónskáld.
- 1991 - Rithöfundurinn Graham Greene lést.
|