3. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
3. júní er 154. dagur ársins (155. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 211 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1098 - Fyrsta krossferðin: Antíokkía féll í hendur krossfara eftir 8 mánaða umsátur.
- 1140 - Franski fræðimaðurinn Pierre Abélard var ákærður fyrir trúvillu.
- 1334 - Haukur Erlendsson lögmaður lést. Hann dvaldist löngum í Noregi og átti þar sæti í ríkisráði. Við hann er kennd Hauksbók, sem meðal annars inniheldur Landnámu og Völuspá.
- 1620 - Bygging elstu steinkirkju í franska hluta Norður-Ameríku hófst í Quebec í Kanada.
- 1746 - Húsagatilskipunin gefin út. Þar var kveðið á um réttindi og skyldur húsbænda og hjúa og einnig ákvæði um uppeldi barna.
- 1800 - John Adams, forseti Bandaríkjanna, tók sér lögheimili í Washington, D.C. Hvíta húsið var þó ekki tilbúið.
- 1844 - Síðustu tveir geirfuglarnir sem vitað er um voru veiddir í Eldey.
- 1848 - Peter Duus keypti verslunina í Keflavík af Martin Smith á 3.700 ríkisdali.
- 1866 - Pétur Pétursson vígður biskup. Hann var áður forstöðumaður prestaskólans.
- 1889 - Austur- og vesturströnd Kanada voru tengdar saman með lestarteinum.
- 1926 - Fílharmoníuhljómsveit Hamborgar undir stjórn Jóns Leifs, tónskálds, hélt tónleika í Iðnó í Reykjavík og voru þeir sagðir mesti listviðburður í sögu landsins.
- 1932 - Ríkisstjórn undir forsæti Ásgeirs Ásgeirssonar tók við völdum.
- 1937 - Flugfélag Akureyrar var stofnað, er síðar varð Flugfélag Íslands, hið þriðja með því nafni. Það sameinaðist síðar Loftleiðum og myndaði Flugleiðir.
- 1946 - Fimm fórust og fimmtíu manns misstu heimili sín í miklum eldsvoða á Ísafirði.
- 1950 - Annapurna, 10. hæsta fjall heims, var klifið í fyrsta sinn.
- 1951 - Bjarni Jónsson dómprófastur kvaddi söfnuð sinn í Dómkirkjunni í Reykjavík eftir 41 árs þjónustu. Talið er að hann hafi unnið fleiri prestsverk en nokkur annar hér á landi. Hann mun hafa jarðsungið yfir 6000 manns.
- 1951 - Fyrsta óperan uppfærð í Þjóðleikhúsinu: Rigoletto eftir Verdi.
- 1955 - Ein fyrsta ísbúð á landinu var opnuð: Dairy Queen við Hjarðarhaga í Reykjavík.
- 1968 - Valerie Solanas reyndi að drepa Andy Warhol með því að skjóta hann þrisvar.
- 1974 - Menntaskólinn á Ísafirði útskrifaði fyrstu stúdentana.
- 1977 - Bob Marley and the Wailers gáfu út breiðskífuna Exodus, sem síðar var valin „breiðskífa aldarinnar“ af tímaritinu Time Magazine.
- 1983 - Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík var komið á fót með 12 sérþjálfuðum mönnum.
- 1989 - Jóhannes Páll 2. páfi kom til Íslands og söng meðal annars messu við Landakotskirkju. Þúsundir sóttu þá messu.
- 1997 - Lionel Jospin varð forsætisráðherra Frakklands.
- 2006 - Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1864 - Ransom E. Olds, bandarískur bílaframleiðandi (d. 1950).
- 1865 - Georg 5., Bretakonungur (d. 1936)
- 1925 - Tony Curtis, bandarískur leikari (d. 2010).
- 1926 - Allen Ginsberg, bandarískt skáld (d. 1997).
- 1942 - Curtis Mayfield, bandarískur lagahöfundur og tónlistarmaður (d. 1999).
- 1946 - Ian Hunter, enskur tónlistarmaður (Mott the Hoople).
- 1950 - Suzi Quatro, bandarísk leikkona og tónlistarmaður.
- 1963 - Hólmfríður Karlsdóttir, Ungfrú heimur 1986.
- 1964 - Kerry King, bandarískur tónlistarmaður (Slayer).
- 1986 - Rafael Nadal, spænskur tennisleikari.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1334 - Haukur Erlendsson, lögmaður.
- 1657 - William Harvey, enskur læknir (f. 1578).
- 1964 - Frans Eemil Sillanpää, finnskur rithöfundur og verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Nóbels (f. 1888).
- 1975 - Eisaku Sato, forsætisráðherra Japans og verðlaunahafi friðarverðlauna Nóbels (f. 1901).
- 1977 - Archibald Vivian Hill, enskur lífeðlisfræðingur (f. 1886).
- 1989 - Ayatollah Ruhollah Khomeini, íranskur shíta-leiðtogi (f. 1900).
- 2009 - David Carradine, bandarískur leikari (f. 1936).
- 2010 - Pétur Sigurgeirsson, biskup Íslands (f. 1919).
|