30. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
30. apríl er 120. dagur ársins (121. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 245 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1250 - Loðvík 9. Frakkakonungur var leystur úr haldi Egypta gegn því að greiða lausnargjald, milljón dínara og borgina Damietta sem hann hafði áður hertekið.
- 1429 - Umsátrið um Orléans: Jóhanna af Örk kom til Orléans með varalið.
- 1632 - Þrjátíu ára stríðið: Svíar unnu sigur á her keisarans í orrustunni við Lech.
- 1777 - Johann Carl Friedrich Gauß var þýskur stærðfræðingur og vísindamaður.
- 1789 - George Washington sór embættiseið og varð þar með fyrsti forseti Bandaríkjanna.
- 1838 - Níkaragva sagði sig úr Ríkjasambandi Mið-Ameríku og lýsti yfir sjálfstæði.
- 1930 - Helga Tómassyni var vikið úr starfi yfirlæknis á Kleppi í kjölfar Stóru bombu.
- 1939 - Franklin D. Roosevelt kom fram í sjónvarpi, fyrstur bandarískra forseta.
- 1945 - Sovétmenn náðu þinghúsinu í Berlín og flögguðu sovéska fánanum á þaki þess.
- 1945 - Bandaríkjamenn lögðu München undir sig.
- 1945 - Adolf Hitler, kanslari Þýskalands og eiginkona hans Eva Braun frömdu sjálfsmorð með því að taka blásýru í loftvarnabyrgi í Berlín.
- 1948 - Fyrsti Land Rover-jeppinn var sýndur á bílasýningu í Amsterdam.
- 1957 - Norrænu skíðalandskeppninni lauk. Þá höfðu 14% Íslendinga, eða um 23.000 manns, tekið þátt og gengið 4 km á skíðum. Á Ólafsfirði var þáttakan 67%.
- 1966 - Hótel Loftleiðir var opnað í Reykjavík aðeins 16 mánuðum eftir að framkvæmdir hófust.
- 1975 - Víetnamstríðinu lauk með falli Saígon í hendur Norður-Víetnama.
- 1980 - Beatrix Hollandsdrottning tók við krúnunni af móður sinni.
- 1991 - Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við völdum.
- 1993 - Alþingi samþykkti fyrstu stjórnsýslulög á Íslandi þar sem kveðið var á um meginreglur opinberrar stjórnsýslu. Meðal þess sem var lögfest voru jafnræðisreglan og andmælaréttur við meðferð opinberra mála.
- 1994 - Árbæjarlaug opnaði.
- 1999 - Kambódía gekk í Samband Suðaustur-Asíuríkja.
- 2004 - Umdeild breyting á útlendingalögunum var samþykkt á Alþingi.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1245 - Filippus 3. Frakkakonungur (d. 1285).
- 1310 - Kasimír 3. Póllandskonungur (d. 1368).
- 1662 - María 2. Englandsdrottning (d. 1694).
- 1777 - Carl Friedrich Gauss, þýskur stærðfræðingur (d. 1855).
- 1883 - Jaroslav Hašek, tékkneskur rithöfundur (d. 1923).
- 1893 - Joachim von Ribbentrop, utanríkisráðherra Þýskalands á tímum þriða ríkisins. (d. 1946).
- 1906 - Þorvaldur Skúlason, myndlistarmaður (d. 1984).
- 1908 - Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra (d. 1970).
- 1916 - Claude Shannon, bandarískur stærðfræðingur (d. 2001).
- 1933 - Þorgeir Þorgeirsson, íslenskur kvikmyndagerðarmaður og þýðandi (d. 2003).
- 1946 - Karl 16. Gustaf Sviakonungur.
- 1946 - Sven Nordqvist, sænskur barnabókahöfundur.
- 1956 - Lars von Trier, danskur leikstjóri.
- 1961 - Isiah Thomas, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1973 - Naomi Novik, bandarískur rithöfundur.
- 1974 - Stefán I. Þórhallsson, íslenskur slagverksleikari.
- 1982 - Kirsten Dunst, bandarísk leikkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 65 - Lucanus, rómverskt skáld (f. 39).
- 1341 - Jóhann 3. hertogi af Bretagne (f. 1286).
- 1632 - Sigmundur 3., konungur Pólsk-litháíska samveldisins og Svíþjóðar (f. 1566).
- 1632 - Tilly, þýskur herforingi í Þrjátíu ára stríðinu (f. 1559).
- 1899 - Eiríkur Jónsson, íslenskur fræðimaður (f. 1822).
- 1945 - Adolf Hitler, einræðisherra í Þýskalandi (f. 1889).
- 1945 - Eva Braun, eiginkona Adolfs Hitlers (f. 1912).
- 1989 - Sergio Leone, ítalskur leikstjóri (f. 1929).
|