20. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
20. mars er 79. dagur ársins (80. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 286 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 44 f.Kr. - Júlíus Caesar var borinn til grafar.
- 1602 - Hollenska Austur-Indíafélagið stofnað og veitt einkaleyfi til verslunar í nýlendum Hollendinga í Asíu.
- 1759 - Danakonungur gaf út úrskurð um að byggja þyrfti tugthús á Íslandi.
- 1815 - Ríkisbankadalur var tekinn upp sem gjaldmiðill á Íslandi.
- 1848 - Casinofundurinn var haldinn í Casinoleikhúsinu í Kaupmannahöfn þar sem samþykktar voru kröfur á hendur Friðriki 7. Danakonungi.
- 1852 - Kofi Tómasar frænda eftir Harriet Beecher Stowe kom út.
- 1861 - Jarðskjálfti lagði borgina Mendoza í Argentínu algjörlega í rúst.
- 1907 - Gufuskipið Kong Trygve ferst austur af Langanesi og með skipinu fórust 8 manns.
- 1916 - Albert Einstein birti ritgerð sína um almennu afstæðiskenninguna.
- 1927 - Flutningaskipið Brúarfoss kom til landsins.
- 1939 - Þýsk sendinefnd óskaði eftir að Þjóðverjar fengju að koma upp flugbækistöð á Íslandi. Því var hafnað.
- 1952 - Friðarsamningarnir við Japan voru samþykktir í öldungadeild Bandaríkjaþings.
- 1956 - Túnis fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1982 - Fokkerflugvél með ónýtan hreyfil og laskaðan hjólabúnað nauðlenti á Keflavíkurflugvelli eftir að sprenging varð í hreyflinum skömmu eftir flugtak á Ísafirði. Engin slys urðu á fólki.
- 1969 - John Lennon og Yoko Ono giftu sig á Gíbraltar.
- 1990 - Hundrað bílar lentu í árekstrum í Reykjavík vegna blindbylja sem gengu yfir.
- 1991 - Stysta ræða í sögu Alþingis var flutt. Hún var svohljóðandi: „Virðulegi forseti! Álverið rísi!“ Ræðumaður var Ásgeir Hannes Eiríksson.
- 2003 - Bandaríkin og bandamenn þeirra réðust inn í Írak.
- 2010 - Eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi.
- 2015 - Almyrkvi á sólu gekk yfir Atlantshaf, Færeyjar, Svalbarða og Norðurslóðir og sást mjög vel á Íslandi.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 43. f.Kr. - Publius Ovidius Naso (Óvíð), rómverskt skáld (17 e.Kr.).
- 1634 - Balthasar Bekker, hollenskur heimspekingur (d. 1698).
- 1828 - Henrik Ibsen, norskt leikskáld (d. 1906)
- 1850 - Jón Ólafsson, íslenskur blaðamaður , ritstjóri og alþingismaður (d. 1916).
- 1904 - Burrhus Frederic Skinner, bandarískur sálfræðingur (d. 1990).
- 1940 - Valgarður Egilsson, læknir og rithöfundur.
- 1953 - Gísli Rúnar Jónsson, leikari.
- 1957 - Spike Lee, bandarískur leikstjóri.
- 1958 - Holly Hunter, bandarísk leikkona.
- 1984 - Fernando Torres, spænskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1413 - Hinrik 4. Englandskonungur (f. 1367).
- 1619 - Matthías keisari hins Heilgaa rómverska ríkis (f. 1557).
- 1688 - Nicolas Mignard, franskur listmálari (f. 1606).
- 1877 - Páll Pálsson, amtskrifari á Stapa (f. 1806).
- 1935 - Jón Þorláksson, verkfræðingur, borgarstjóri og ráðherra (f. 1877).
- 2004 - Júlíana Hollandsdrottning (f. 1909).
|