Sólaldin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Sólaldin (Carica papaya)

Sólaldin eða papaya er ávöxtur trésins Carica papaya. Sólaldin er upprunnið í Suður-Ameríku en er nú ræktað víða. Aldinið er perulaga og gulgrænt að lit en aldinkjötið er gulleitt eða rauðgult. Í kjarnanum eru ógrynni af fræjum umlukin slímkenndu efni. Í óþroskuðu sólaldini er hvítleitur vökvi sem inniheldur efnið papain en í því efni er ensím sem leysir upp prótein.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist