Silfur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
  Kopar  
Palladín Silfur Kadmín
  Gull  
Silver crystal.jpg
Efnatákn Ag
Sætistala 47
Efnaflokkur Hliðarmálmur
Eðlismassi 10490,0 kg/
Harka 2,5
Atómmassi 107,8682(2) g/mól
Bræðslumark 1234,93 K
Suðumark 2435,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Silfur er frumefni með efnatáknið Ag (skammstöfun á latneska orðinu yfir silfur, argentum) og er númer 47 í lotukerfinu. Silfur er mjúkur, hvítgljáandi hliðarmálmur sem hefur hæstu raf- og hitaleiðni allra málma og finnst í steindum og einnig í hreinu formi. Það er notað í mynt, skartgripi, borðbúnað og ljósmyndun.

Almenn einkenni[breyta | breyta frumkóða]

Silfur er mjög sveigjanlegur og þjáll (rétt harðara en gull, eingildur myntmálmur með skínandi hvítan málmgljáa. Það hefur hæstu rafleiðni allra málma, jafnvel hærri en kopar, en sökum verðs hefur það ekki náð sömu vinsældum og kopar í rafmagnsverki.

Hreint silfur hefur einnig hæstu hitaleiðni, hvítasta litinn, og hæstu endurkasthæfni ljóss (það er samt slæmur endurkastari útfjólublás ljóss), og lægsta snertiviðnám allra málma. Silfurhalíð eru ljósnæm og eru markverð fyrir áhrif ljóss á þau. Silfur er stöðugt í lofti og vatni, en tærist í snertingu við óson, vetnissúlfíð eða loft sem inniheldur brennistein. Algengustu oxunarstig silfurs er +1, en nokkur +2 efnasambönd eru þekkt.

Notkun[breyta | breyta frumkóða]

Aðalnot silfurs eru sem eðalmálmur og halíðsölt þess, þá sérstaklega silfurnítrat, eru mikið notuð í ljósmyndun (sem að er stærsti notandi silfurs). Önnur not fyrir silfur má nefna sem;

  • Rafmagns- og rafeindavörur, sem að þurfa á að halda framúrskarandi rafleiðni silfurs, jafnvel þegar það hefur tærst. Til dæmis eru prentaðar rafrásir gerðar með silfurmálningu og lyklaborð fyrir tölvur nota snerta úr silfri. Silfur er einnig notað í háspennusnerta, því það er eini málmurinn sem að neistar ekki milli snerta, og er þar af leiðandi mjög hættulaust í notkun.
  • Speglar sem á þurfa að halda endurkastshæfni silfurs eru búnir til í ferli sem kallað er silfrun. Speglar eru samt almennt búnir til úr áli.
  • Silfur hefur verið notað í mynt síðan 700 f. Kr. af Lydíubúum í formi electrum. Seinna var silfrið hreinsað og slegið í mynt í hreinu formi. Orðið silfur er stundum notað yfir peninga.
  • Vegna fegurðar sinnar er silfur notað til framleiðslu á skartgripum og borðbúnaði. Oftast er þá notuð silfurmálmblanda kölluð Sterling silfur, sem er um 92,5% silfur.
  • Sökum þess að það er þjált, óeitrað og fagurt er það nytsamlegt í tannsmíðamálmblöndur fyrir fyllingar og brýr.