9. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
9. febrúar er 40. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 325 dagar (326 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1455 - Rósastríðið hófst í Englandi með því að Ríkharður hertogi af York missti stöðu sína við hirð Hinriks 6..
- 1621 - Alessandro Ludovisi varð Gregoríus 15. páfi.
- 1640 - Íbrahím 1. tók við embætti Tyrkjasoldáns við lát bróður síns, Múraðs 4..
- 1822 - Haítí réðst inn í Dóminíska lýðveldið.
- 1827 - Kambsránið var framið á bænum Kambi í Flóa.
- 1885 - Fyrstu Japanirnir komu til Hawaii.
- 1895 - William G. Morgan fann upp blakið.
- 1900 - Davis Cup-keppnin í tennis var stofnuð.
- 1916 - Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda var stofnað.
- 1942 - Síðari heimsstyrjöldin: - Japanir gerðu loftárás á Darwin í Ástralíu.
- 1959 - Togarinn Júlí fórst við Nýfundnaland og með honum þrjátíu manna áhöfn.
- 1964 - Bítlarnir komu í fyrsta skipti fram í The Ed Sullivan Show.
- 1984 - Bankarán var framið í útibúi Iðnaðarbankans í Breiðholti í Reykjavík. Maður með lambhúshettu rændi rúmlega þrjú hundruð þúsund krónum. Hann hefur aldrei náðst.
- 1991 - Litháar völdu sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ísland var fyrsta landið til að viðurkenna það.
- 2001 - Ariel Sharon, formaður Likudflokksins, varð forsætisráðherra Ísraels.
- 2001 - Bandarískur kafbátur sökkti óvart japönsku fiskiskipi.
- 2003 - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hélt fræga ræðu í Borgarnesi þar sem hún sakaði ráðamenn um að láta stjórnast af persónulegri óvild í garð tiltekinna athafnamanna.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1748 - Luther Martin, bandarísk þjóðernishetja (d. 1826).
- 1773 - William Henry Harrison, Bandaríkjaforseti (d. 1841).
- 1909 - Rob-Vel, franskur teiknimyndasagnahöfundur (d. 1991).
- 1913 - Jóhann Svarfdælingur, hæsti maður Íslandssögunnar (d. 1984).
- 1940 - J. M. Coetzee, suðurafrískur rithöfundur.
- 1942 - Carole King, bandarísk tónlistarkona.
- 1943 - Joe Pesci, bandarískur leikari.
- 1945 - Mia Farrow, bandarísk leikkona.
- 1953 - Egill Ólafsson, íslenskur söngvari og leikari.
- 1981 - John Walker Lindh, bandaríski talibaninn.
- 1984 - Ólafur Páll Torfason aka Opee, íslenskur rappari og textahöfundur.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1881 - Fjodor Dostojevskíj, rússneskur rithöfundur (f. 1821).
- 1981 - Bill Haley, bandarískur tónlistarmaður (Bill Haley and the Comets) (f. 1925).
- 2002 - Margrét prinsessa, greifynjan af Snowdon (f. 1930).
|