26. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
26. desember er 360. dagur ársins (361. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 5 dagar eru eftir af árinu. Annar í jólum.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1606 - Leikrit William Shakespeare, Lér konungur, var frumflutt við bresku hirðina.
- 1836 - Suður-Ástralía varð sjálfstæð nýlenda Breta.
- 1877 - Í Dómkirkjunni í Reykjavík var ekki hægt að messa vegna kulda. Tveimur árum síðar voru settir ofnar í kirkjuna.
- 1898 - Marie og Pierre Curie gerðu opinbert að þau hefðu einangrað radíum.
- 1911 - Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Fjalla-Eyvind eftir Jóhann Sigurjónsson og var leikritið sýnt við metaðsókn um veturinn.
- 1941 - Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson. Aðalleikarar voru Arndís Björnsdóttir og Brynjólfur Jóhannesson.
- 1953 - Sjö systkini voru skírð samtímis í Fossvogskirkju, hið yngsta tveggja mánaða en hið elsta 6 ára.
- 1956 - Þýska kvikmyndin Du darfst nicht länger schweigen, gerð eftir skáldsögu Kristmanns Guðmundssonar, Morgunn lífsins, var frumsýnd í Gamla bíói.
- 1981 - Leikritið Hús skáldsins eftir Halldór Laxness var frumflutt og þá jafnframt lagið Maístjarnan eftir Jón Ásgeirsson. Lagið hefur verið vinsælt síðan.
- 1991 - Sovétríkin voru opinberlega leyst upp.
- 2003 - Fyrsta greinin í íslenska hluta Wikipedia var skrifuð.
- 2004 - Stór flóðbylgja skall á ströndum landa við Indlandshaf. Um 300.000 manns létu lífið.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1791 - Charles Babbage, enskur stærðfræðingur (d. 1871).
- 1893 - Mao Tsetung, kínverskur leiðtogi (d. 1976).
- 1940 - Phil Spector, bandarískur upptökustjóri.
- 1943 - Jón Bjarnason, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1962 - Lars Ulrich, trommari (Metallica).
- 1971 - Jared Leto, bandarískur leikari.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 268 - Dýónísíus páfi.
- 1867 - József Kossics, slóvenskur rithöfundur (f. 1788).
- 1914 - Halldór Jónsson, bæjarfulltrúi í Reykjavík (f. 1859).
- 1952 - Katrín Pálsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjavík (f. 1889).
- 1972 - Harry S. Truman, Bandaríkjaforseti (f. 1884).
- 1997 - Jón Magnússon, knattspyrnumaður og formaður Knattspyrnufélagsins Fram og Fimleikafélags Hafnarfjarðar (f. 1911).
- 2006 - Gerald Ford, Bandaríkjaforseti (f. 1913).
|