12. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
12. janúar er 12. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 353 dagar (354 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1528 - Gústaf 1. var krýndur konungur Svíþjóðar.
- 1830 - Síðasta aftaka á Íslandi. Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir, sem höfðu myrt Natan Ketilsson og Pétur Jónsson, voru hálshöggvin.
- 1940 - Seinni heimsstyrjöld: Rússar vörpuðu sprengjum á borgir í Finnlandi.
- 1969 - Led Zeppelin gáfu út fyrstu breiðskífu sína.
- 1991 - Persaflóastríðið: Bandaríska þingið staðfesti lög sem heimiluðu bandaríska hernum að ráðast gegn sveitum Íraka í Kúveit.
- 1993 - Aðild Íslands að Evrópska Efnahagssvæðinu, EES, samþykkt á Alþingi eftir 100 klukkustunda umræður.
- 2010 - Öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí. Björgunarsveit frá Íslandi var fyrst á staðinn.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1729 - Edmund Burke, írskur stjórnmálamaður (d. 1797).
- 1876 - Jack London, bandarískur rithöfundur (d. 1916).
- 1929 - Jaakko Hintikka, finnskur rökfræðingur og heimspekingur.
- 1949 - Murakami Haruki, japanskur rithöfundur.
- 1950 - Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands.
- 1951 - Kirstie Alley, bandarísk leikkona.
- 1954 - Howard Stern, bandarískur útvarpsmaður.
- 1966 - Rob Zombie, bandarískur tónlistarmaður, listamaður og rithöfundur.
- 1970 - Zack de la Rocha, bandarískur tónlistarmaður (Rage Against the Machine).
- 1974 - Tor Arne Hetland, norskur skíðagöngugarpur.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1665 - Pierre de Fermat, franskur stærðfræðingur og lögfræðingur (f. 1601).
- 1976 - Agatha Christie, enskur rithöfundur (f. 1890).
|