17. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
17. ágúst er 229. dagur ársins (230. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 136 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1424 - Hundrað ára stríðið: Englendingar unnu sigur á stærri her Frakka í orrustunni við Verneuil.
- 1560 - Mótmælendatrú var formlega tekin upp í Skotlandi.
- 1924 - Antonio Locatelli, ítalskur flugmaður, kom til Reykjavíkur á flugbáti. Hann fór til Grænlands þann 21. ágúst ásamt Erik Nelson, sem fyrstur kom fljúgandi til Íslands.
- 1945 - Indónesía lýsti yfir sjálfstæði.
- 1946 - Valgerður Þorsteinsdóttir varð fyrsta íslenska konan til að ljúka einkaflugmannsprófi.
- 1960 - Gabon fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1980 - Heklugos hófst og stóð stutt, aðeins í nokkra daga. Aftur hófst stutt gos þann 9. apríl 1981 og er það talið framhald þessa goss.
- 1988 - Forseti Pakistans Muhammad Zia-ul-Haq og sendiherra Bandaríkjanna Arnold Raphel létust í flugslysi.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1601 - Pierre de Fermat, franskur stærðfræðingur (d. 1665).
- 1603 - Lennart Torstenson, sænskur herforingi (d. 1651).
- 1819 - Jón Árnason, þjóðsagnasafnari (d. 1888).
- 1904 - Helga Sigurðardóttir, skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands og matreiðslubókahöfundur (d. 1962).
- 1926 - Jiang Zemin, leiðtogi Alþýðulýðveldisins Kína.
- 1930 - Ted Hughes, breskt skáld (d. 1998).
- 1932 - V. S. Naipaul, indverskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi.
- 1943 - Robert De Niro, bandarískur leikari.
- 1957 - Ellert Ingimundarson, leikari.
- 1960 - Sean Penn, bandarískur leikari.
- 1962 - Björn Ingi Hilmarsson, leikari.
- 1977 - William Gallas, franskur knattspyrnumaður
- 1977 - Thierry Henry, franskur knattspyrnumaður
- 1980 - Jan Kromkamp, hollenskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1852 - Sveinbjörn Egilsson, rektor, skáld og þýðandi (f. 1791).
- 1969 - Ludwig Mies van der Rohe, þýskur arkitekt (f. 1886).
- 1987 - Rudolf Hess, varamaður Adolfs Hitlers í Þýskalandi nasismans (f. 1894).
- 2010 - Francesco Cossiga, forseti Ítalíu (f. 1928).
|