31. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
31. janúar er 31. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 334 dagar (335 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1208 - Orrustan við Lena milli Dana og Svía.
- 1273 - Orrustunni um Xiangyang, sem staðið hafði í sex ár, lauk með sigri Júanveldisins yfir Songveldinu.
- 1522 - Sveinsstaðafundur átti sér stað; vopnuð átök milli fylgismanna Teits ríka Þorleifssonar og Jóns Arasonar, síðar biskups.
- 1881 - Kirkjan á Núpi í Dýrafirði fauk á haf út í ofviðri. Hún var nýbyggð og vönduð.
- 1926 - Fyrstu útvarpsútsendingar í tilraunaskyni fóru fram á Íslandi.
- 1951 - Flugvélin Glitfaxi fórst með 20 manns innanborðs út af Vatnsleysuströnd í aðflugi til Reykjavíkur. Hún var að koma frá Vestmannaeyjum.
- 1954 - Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi.
- 1968 - Nárú lýsti yfir sjálfstæði frá Ástralíu.
- 1971 - Mannaða geimfarið Apollo 14 lagði upp í ferð til tunglsins.
- 1980 - Ferðamönnum var leyft að kaupa bjór við komuna til Íslands.
- 1981 - Allsherjarmanntal var tekið á Íslandi, það 22. í röðinni síðan 1703.
- 1982 - Samtök um kvennaframboð voru stofnuð af konum í Reykjavík.
- 1990 - Fyrsti rússneski McDonaldsstaðurinn var opnaður í Moskvu.
- 1999 - Fyrsti þátturinn af Family Guy var sendur út í Bandaríkjunum.
- 2010 - Íslenska handknattleikslandsliðið hlaut bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í Austurríki.
- 2012 - Sprengja var sprengd við Hverfisgötu 6, skamman spöl frá Stjórnarráðshúsinu. Karlmaður sást flýta sér af vettvangi í hvítum sendibíl og náðust myndir af manninum og bílnum á öryggismyndavélar og varð það til þess að gerandinn náðist.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1543 - Tokugawa Ieyasu, japanskur herstjóri (d. 1616).
- 1686 - Hans Egede, danskur trúboði (d. 1758).
- 1905 - John O'Hara, bandarískur rithöfundur (d. 1970).
- 1929 - Jean Simmons, bresk leikkona (d. 2010).
- 1938 - Beatrix Hollandsdrottning.
- 1953 - Herdís Þórðardóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1956 - Johnny Rotten, breskur söngvari (Sex Pistols).
- 1964 - Jeff Hanneman, bandarískur gítarist (Slayer).
- 1981 - Justin Timberlake, bandarískur söngvari.
- 1982 - Helena Paparizou, grísk söngkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1606 - Guy Fawkes, einn þátttakenda í Púðursamsærinu í Englandi (f. 1570).
- 1719 - Þormóður Torfason, íslenskur sagnaritari (f. 1636).
- 1974 - Samuel Goldwyn, bandarískur framkvæmdastjóri-kvikmyndastúdíós (f. 1882).
|