20. apríl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
20. apríl er 110. dagur ársins (111. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 255 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1303 - Háskólinn í Róm var stofnaður af Bónifasíusi 8. páfa.
- 1593 - Ari Magnússon fékk sýsluvöld í Barðastrandarsýslu og umboð konungsjarða.
- 1602 - Einokunarverslun Dana hófst á Íslandi með því að konungur veitti borgurum í Kaupmannahöfn, Málmey og Helsingjaeyri einkaleyfi til verslunar á Íslandi. Einokunin stóð til ársloka 1787 (sjá 1. janúar 1788).
- 1653 - Oliver Cromwell leysti Langa þingið upp.
- 1706 - Miklir jarðskjálftar á Suðurlandi og féllu 24 bæir til grunna í Ölfusi og Flóa. Ein gömul kona lést á Kotferju en manntjón varð ekki víðar.
- 1740 - Upp kom sakamál í Múlaþingi þar sem systkini voru ákærð fyrir að eiga barn saman. Þau hétu Sunnefa og Jón og voru bæði dæmd til dauða. Málarekstur stóð árum saman og fékk nafnið Sunnefumál. Sunnefa dó 17 árum síðar og þá var Jón dæmdur til ævilangrar þrælkunar og lést hann ári síðar.
- 1821 - Mönguvetur dró nafnið af því að þennan dag komu skipbrotsmenn af hvalveiðiskipinu Margréti að landi á Þangskála á Skaga eftir mikla hrakninga í ís norðan við land.
- 1912 - Fenway Park var opnaður í Boston.
- 1916 - Víðavangshlaup ÍR fór fram í fyrsta sinn en það hefur verið árviss viðburður síðan á sumardaginn fyrsta.
- 1920 - Sumarólympíuleikarnir settir í Antwerpen í Belgíu.
- 1928 - Mæðrastyrksnefnd stofnuð í Reykjavík.
- 1930 - Stóra bomba: Jónas Jónsson frá Hriflu, dómsmálaráðherra, vék Helga Tómassyni, yfirlækni á Kleppi úr starfi vegna þess að hann hafði haldið því fram að ráðherrann væri geðveikur. Læknirinn fékk dæmdar skaðabætur og stöðu sína aftur með dómi hæstaréttar í árslok 1932.
- 1950 - Þjóðleikhúsið var vígt. Framkvæmdir við það hófust 1928, en stöðvuðust vegna fjárskorts og síðar vegna hernámsins.
- 1968 - Pierre Elliott Trudeau var kosinn fimmtándi forsætisráðherra Kanada.
- 1977 - Boris Spasskíj vann Vlastimil Hort í skákeinvígi þeirra, sem haldið var í Reykjavík.
- 1991 - Alþingiskosningar voru haldnar. Fleiri listar voru í framboði en nokkru sinni, eða 11 listar alls.
- 1999 - Columbine-fjöldamorðin: Tveir nemendur Columbine-menntaskólans skutu 13 skólafélaga sína til bana og særðu 24 aðra en frömdu síðan sjálfsmorð.
- 2006 - RES Orkuskóli (The School for Renewable Energy Science) tók formlega til starfa á Akureyri, Sumardaginn fyrsta, 20. apríl 2006.
- 2010 - Sprenging í olíuborpallinum Deepwater Horizon í Mexíkóflóa olli olíuleka sem stórskaðaði vistkerfi flóans.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1633 - Go-Komyo, Japanskeisari (d. 1654).
- 1808 - Napóleon 3., Frakkakeisari (d. 1873).
- 1889 - Adolf Hitler, einræðisherra í Þýskalandi (d. 1945).
- 1893 – Harold Lloyd, bandarískur leikari (d. 1971).
- 1893 – Joan Miró, spænskur málari (d. 1983).
- 1937 - George Takei, bandarískur leikari.
- 1939 - Gro Harlem Brundtland, norskur stjórnmálamaður.
- 1941 – Ryan O'Neal, bandarískur leikari.
- 1942 – Arto Paasilinna, finnskur rithöfundur.
- 1949 - Massimo D'Alema, ítalskur stjórnmálamaður.
- 1949 – Jessica Lange, bandarísk leikkona.
- 1951 – Luther Vandross, bandarískur söngvari (d. 2005).
- 1962 - Sigurður Ingi Jóhannsson, íslenskur stjórnmálamaður og dýralæknir.
- 1964 – Andy Serkis, enskur leikari.
- 1966 - David Chalmers, ástralskur heimspekingur.
- 1972 - Carmen Electra, bandarísk leikkona.
- 1976 - Shay Given, írskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1314 – Klemens V páfi (f. 1264).
- 1912 – Bram Stoker, írskur rithöfundur (f. 1847).
- 1947 – Kristján 10. Danakonungur (f. 1870).
- 1951 - Ivanoe Bonomi, forsætisráðherra Ítalíu (f. 1873).
- 1996 – Christopher Robin Milne, sonur rithöfundarins A.A. Milne og eigandi Bangsímons (f. 1920).
|