12. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
12. júlí er 193. dagur ársins (194. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 172 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1636 - Um 35 Íslendingar voru keyptir lausir úr Barbaríinu.
- 1690 - Orrustan við Boyne: mótmælendaher Vilhjálms 3. sigruðu kaþólskan her Jakobs 2. á Írlandi.
- 1906 - Dreyfusmálið: Alfred Dreyfus fékk uppreisn æru rúmlega áratug eftir að hafa verið dæmdur sekur fyrir landráð.
- 1932 - Norskir hermenn lögðu hluta Austur-Grænlands undir sig og kölluðu Eirik Raudes Land.
- 1962 - Hljómsveitin Rolling Stones steig á svið í fyrsta skiptið, á Marquee-klúbbnum í London.
- 1975 - Saó Tóme og Prinsípe fengu sjálfstæði frá Portúgal.
- 1979 - Kíribatí fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 2006 - Ísraelskar hersveitir réðust inn í Líbanon í kjölfar þess að Hezbollah tók tvo ísraelska hermenn í gíslingu.
- 2013 - Malala Yousafzai ávarpaði Sameinuðu þjóðirnar í New York á 16 ára afmælisdegi sínum og krafðist réttinda til menntunar fyrir alla.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 100 f.Kr. - Júlíus Sesar, rómverskur hershöfðingi og stjórnmálamaður (d. 44 f.Kr.).
- 1817 - Henry David Thoraeu, bandarískur rithöfundur og heimspekingur (d. 1862).
- 1895 - Buckminster Fuller, bandarískur arkitekt (d. 1983).
- 1904 - Pablo Neruda, síleanskt skáld og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1973).
- 1922 - Michael Ventris, enskur arkitekt (d. 1956).
- 1937 - Lionel Jospin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands.
- 1942 - Páll Zóphoníasson, fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
- 1967 - Rebekka A. Ingimundardóttir, leikkona og leikmyndahönnuður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1536 - Erasmus frá Rotterdam, hollenskur heimspekingur (f. 1466).
- 1712 - Richard Cromwell, konungur Bretlands (f. 1626).
- 1926 - Gertrude Bell, breskur fornleifafræðingur og njósnari (f. 1868).
- 1935 - Alfred Dreyfus, franskur hermaður (f. 1859).
- 1994 - David Malcolm Lewis, enskur fornfræðingur (f. 1928).
- 2008 - Egill Jónsson, bóndi og alþingismaður (f. 1930).
|