21. janúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
21. janúar er 21. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 344 dagar (345 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1643 - Abel Tasman uppgötvaði Tonga.
- 1793 - Rússland og Prússland skiptu Póllandi.
- 1853 - Russell L. Hawes fékk einkaleyfi á umslagavél.
- 1899 - Opel-fyrirtækið hóf starfsemi sína.
- 1911 - Fyrsta Monte Carlo-rallýið haldið.
- 1918 - Mesta frost sem mælst hefur á Íslandi mældist á Grímsstöðum og í Möðrudal -38 °C.
- 1919 - Fyrsta stjórnarskrá Írlands var samþykkt.
- 1924 - Vladímír Lenín dó og Jósef Stalín hóf að brjótast til valda.
- 1925 - Albanía lýsti yfir sjálfstæði.
- 1925 - Yfir Ísland gengu mestu flóð og fárviðri í eina öld. Miklar skemmdir urðu í Grindavík, á Eyrarbakka og í Reykjavík.
- 1928 - Íþróttafélag stúdenta var stofnað.
- 1932 - Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis var stofnaður.
- 1976 - Atli Heimir Sveinsson hlaut norrænu tónlistarverðlaunin fyrstur Íslendinga.
- 1976 - Fyrsta farþegaflug hljóðfráu Concorde-þotunnar.
- 1977 - Jimmy Carter, forseti Bandaríkjanna, náðaði nær alla þá bandarísku hermenn, sem hlupust undan merkjum í Víetnamstríðinu og höfðu sumir sest að í Kanada.
- 1982 - Tveir björgunarmenn og tveir úr áhöfn fórust er belgíski togarinn Pelagus strandaði við Vestmannaeyjar.
- 1989 - Spaugstofan hóf göngu sína í Sjónvarpi með þætti sínum 89 af stöðinni.
- 1994 - Lorena Leonor Bobbitt var sýknuð af ákæru um að hafa skorið reðurinn af eiginmanni sínum, John Wayne Bobbitt, og taldi dómurinn að stundarbrjálæði hefði átt sök á verknaðinum.
- 2003 - Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason birti grein í Morgunblaðinu um „bláu höndina“ og var fyrir vikið tekinn á teppið af Davíð Oddssyni, forsætisráðherra.
- 2005 - Heilsíðuauglýsing birtist í The New York Times þar sem „Íslendingar“ báðu Íraka afsökunar á því að Ísland skyldi vera á lista yfir hinar svokölluðu „viljugu þjóðir“.
- 2009 - Mótmæli áttu sér stað við Alþingi, Stjórnarráðið og Þjóðleikhúskjallarann, þar sem Samfylkingarfélagið í Reykjavík samþykkti ályktun um að slíta bæri stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Seinna um kvöldið kom til harðra átaka milli lögreglu og mótmælenda sem endaði með því að táragasi var beitt á Austurvelli.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1775 - André Marie Ampère, franskur eðlis- og stærðfræðingur (d. 1836).
- 1895 - Davíð Stefánsson, þjóðskáld frá Fagraskógi (d. 1964).
- 1905 - Christian Dior, franskur fatahönnuður (d. 1957).
- 1941 - Richie Havens, bandarískur tónlistarmaður.
- 1943 - Arnar Jónsson, íslenskur leikari.
- 1949 - Kristín Marja Baldursdóttir, rithöfundur.
- 1950 - Billy Ocean, tónlistarmaður frá Vestur-Indíum.
- 1965 - Jam Master Jay, bandarískur plötusnúður (d. 2002).
- 1975 - Nicky Butt, enskur knattspyrnumaður.
- 1976 - Emma Bunton, ensk söngkona (Spice Girls).
- 1977 - Philip Neville, enskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1231 - Jón murtur Snorrason, sonur Snorra Sturlusonar (f. um 1203)
- 1914 - Theodor Kittelsen, norskur listamaður (f. 1857).
- 1924 - Vladimir Lenin, byltingarsinnaður Rússi (f. 1870).
- 1931 - Hannes Hafliðason, skipstjóri og bæjarfulltrúi í Reykjavík (f. 1855).
- 1940 - Einar Benediktsson, athafnaskáld
- 1952 - Sveinn Björnsson, fyrrum forseti Íslands.
- 1990 - Mariano Rumor, ítalskur stjórnmálamaður og fyrrum forseti Ítalíu (f. 1915)
- 2002 - Peggy Lee, bandarískur söngvari (f. 1920).
|