31. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
31. júlí er 212. dagur ársins (213. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 153 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 432 - Sixtus 3. páfi tók við embætti.
- 1224 - Eiríkur hinn smámælti og halti krýndur konungur Svíþjóðar.
- 1280 - Árni biskup gaf Mikaelsklaustri í Björgvin Nikulásarkirkjuna í Kirkjubæ í Vestmannaeyjum.
- 1396 - Ísabella af Valois, sex ára dóttir Karls 6. Frakkakonungs, giftist Ríkharði 2. Englandskonungi (29 ára) og var hjónabandið hluti af vopnahléssamningi milli Frakklands og Englands.
- 1423 - Hundrað ára stríðið: Englendingar unnu sigur á Frökkum í orrustunni við Cravant.
- 1492 - Gyðingar reknir frá Spáni. Á milli 40.000 og 200.000 gyðingar yfirgáfu landið. Þegar Bajesíð 2., soldánn Ottómanaveldisins, frétti af brottrekstrinum sendi hann flota sinn til að flytja þá burt og fóru margir til Þessalóníku og Smyrnu í Ottómanaveldinu.
- 1655 - Rússnesk-pólska styrjöldin (1654-1667): Rússneskur her lagði Vilnius undir sig.
- 1667 - Öðru stríði Englands og Hollands lauk með Breda-sáttmálanum.
- 1703 - Daniel Defoe var settur í gapastokk fyrir háðsbækling gegn breskum íhaldsmönnum.
- 1815 - Norðmenn samþykktu ríkjasamband við Svíþjóð. Landið varð þó ekki hluti af sænska ríkinu eins og Finnland hafði verið.
- 1920 - Sala á getnaðarvörnum var bönnuð í Frakklandi.
- 1927 - Erlingur Pálsson sundkappi synti úr Drangey til lands, svokallað Grettissund. Ekki er vitað til að nokkur maður hafi leikið þetta eftir Gretti fyrr en Erlingur. Sund hans tók 4 klukkustundir og 25 mínútur.
- 1935 - Tryggvi Þórhallsson bankastjóri Búnaðarbankans lést, 46 ára að aldri.
- 1948 - Fossvogskirkja í Reykjavík var vígð.
- 1956 - Luzhniki-leikvangur í Moskvu var vígður.
- 1971 - Áhöfn Appollo 15 prófaði í fyrsta sinn tunglbifreið á tunglinu.
- 1972 - Motorman-aðgerðin hófst þegar breski herinn reyndi að komast inn í svæði í Derry, Belfast og Newry sem vopnaðir hópar héldu.
- 1973 - Flugvél frá Delta Airlines fórst í lendingu í Boston með þeim afleiðingum að 89 létust.
- 1991 - Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar var frumsýnd í Stjörnubíói.
- 1992 - Fyrsta kvenkyns glasabarnið fæddist á Íslandi, stúlka sem vó 14 merkur. Fyrsti drengurinn hafði fæðst 17. mars 1988.
- 2009 - Björgólfur Guðmundsson var úrskurðaður gjaldþrota í héraðsdómi Reykjavíkur.
- 2009 – Seint um kvöld var allt tiltækt slökkvilið í Reykjavík kallað út vegna bruna á Vatnsstíg 4.
- 2011 - Tæplega átta hundruð manns létu lífið í gríðarlegum flóðum á Tælandi.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1527 - Maxímilían 2., keisari hins Heilaga rómverska ríkis (d. 1576).
- 1800 - Friedrich Wöhler, þýskur efnafræðingur (d. 1882).
- 1880 - Munshi Premchand, indverskur rithöfundur (d. 1936).
- 1912 - Milton Friedman, bandarískur hagfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 2006).
- 1919 - Primo Levi, ítalskur rithöfundur og efnafræðingur (d. 1987).
- 1921 - Peter Benenson, breskur lögfræðingur og einn af stofnendum Amnesty International (d. 2005).
- 1926 - Hilary Putnam, bandarískur heimspekingur.
- 1931 - Ivan Rebroff, þýskur söngvari
- 1932 - John Searle, bandarískur heimspekingur.
- 1938 - Benedikt Sveinsson, íslenskur athafnamaður.
- 1955 - Kolbrún Halldórsdóttir, íslenskur leikstjóri og stjórnmálamaður.
- 1965 - J. K. Rowling, breskur rithöfundur.
- 1965 - Pat Finn, bandarískur leikari.
- 1974 - Emilia Fox, bresk leikkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1556 - Ignatius Loyola, stofnandi Jesúítareglunnar (f. 1491).
- 1784 - Denis Diderot, franskur heimspekingur (f. 1713).
- 1875 - Andrew Johnson, forset Bandaríkjanna (f. 1808).
- 1886 - Franz Liszt, ungverskt tónskáld (f. 1811).
- 1935 - Tryggvi Þórhallsson, íslenskur bankastjóri (f. 1889).
- 1944 - Antoine de Saint-Exupéry, franskur rithöfundur (f. 1900).
- 1960 - Júlíus Havsteen, sýslumaður (f. 1886).
- 1993 - Baldvin 1. Belgíukonungur (f. 1930).
|