7. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
7. október er 280. dagur ársins (281. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 85 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1342 - Pierre Roger varð Klemens 6. páfi í Avignon.
- 1346 - Orrustan við Nevilles Cross í Skotlandi. Englendingar handtóku Davíð 2. Skotakonung og höfðu hann í haldi í 11 ár.
- 1391 - Birgitta Birgisdóttir var tekin í dýrlingatölu.
- 1571 - Orrustan við Lepanto átti sér stað.
- 1684 - Hotta Masatoshi, aðalráðgjafi Tokugawa Tsunayoshi, herstjóra í Japan, var myrtur.
- 1828 - Konungur gaf út úrskurð um það að kirkjudyr skyldu opnast út.
- 1879 - Þýskaland gerði hernaðarbandalag við Austurríki-Ungverjaland.
- 1893 - Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan var stofnað.
- 1920 - Konur fengu að útskrifast með fullar prófgráður frá Oxford-háskóla.
- 1944 - Bandamenn sprengdu John Frost-brúna í Arnhem í loft upp.
- 1949 - Austur-Þýskaland var stofnað.
- 1954 - Minjasafn Reykjavíkur var stofnað. Síðar var því skipt í Árbæjarsafn og Borgarskjalasafn.
- 1989 - Í Reykjavík var opnuð sýning í tilefni af 150 ára afmæli ljósmyndunar. Á sýningunni var meðal annars mynd af Rannveigu Hallgrímsdóttur, en hún var systir Jónasar skálds.
- 1992 - Tekin voru í notkun flóðljós á Laugardalsvelli í Reykjavík.
- 2001 - Bandaríkin hófu árás á Afganistan.
- 2008 - Bankahrunið á Íslandi: Íslenska fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur Landsbanka Íslands.
- 2008 - Bankahrunið á Íslandi: Davíð Oddson kom fram í Kastljósi og sagði: „ við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna“.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1471 - Friðrik 1. Danakonungur (d. 1533).
- 1552 - Sir Walter Raleigh, breskur landkönnuður (d. 1618).
- 1697 - Canaletto, ítalskur listmálari (d. 1768).
- 1885 - Niels Bohr, danskur eðlisfræðingur og nóbelsverðlaunahafi (d. 1962).
- 1900 - Heinrich Himmler, yfirmaður Gestapó á tímum nasistastjórnarinnar í Þýskalandi (d. 1945).
- 1901 - Souvanna Phouma, forsætisráðherra Laos (d. 1984).
- 1932 - Jóhannes Gijsen, biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.
- 1935 - Thomas Keneally, ástralskur rithöfundur.
- 1949 - Randver Þorláksson, leikari.
- 1950 - Jakaya Kikwete, forseti Tansaníu.
- 1952 - Þorsteinn Már Baldvinsson, útgerðarmaður.
- 1952 - Vladímír Pútín, Rússlandsforseti.
- 1956 - Ragnhildur Gísladóttir, tónlistarkona.
- 1962 - Friðrik Skúlason, tölvunarfræðingur.
- 1965 - Dr. Gunni, íslenskur tónlistarmaður.
- 1974 - Charlotte Perrelli, sænsk söngkona.
- 1978 - Sölvi Björn Sigurðsson, íslenskur rithöfundur.
- 1978 - Omar Benson Miller, bandarískur leikari.
- 1988 - Friðrik Dór, íslenskur tónlistarmaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 336 - Markús páfi.
- 1342 - Ketill Þorláksson hirðstjóri á Íslandi.
- 1368 - Lionel af Antwerpen, hertogi af Clarence, sonur Játvarðar 3. Englandskonungs (f. 1338).
- 1576 - Marteinn Einarsson, Skálholtsbiskup.
- 1612 - Giovanni Battista Guarini, ítalskt skáld (f. 1538).
- 1620 - Stanisław Żółkiewski, pólskur herforingi (f. 1547).
- 1796 - Thomas Reid, skoskur heimspekingur (f. 1710).
- 1849 - Edgar Allan Poe, bandarískur rithöfundur (f. 1809).
- 1926 - Emil Kraepelin, þýskur sálfræðingur (f. 1856).
- 2006 - Anna Politkovskaja, úkraínskur blaðamaður (f. 1958).
|