30. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
30. nóvember er 334. dagur ársins (335. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 31 dagur er eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1612 - Sigur Breska Austur-Indíafélagsins yfir Portúgölum í orrustunni við Suvali við strendur Indlands markaði upphafið að endalokum einokunar Portúgala á verslum í Austur-Indíum.
- 1878 - Þjóðsöngur Ástralíu, Advance Australia Fair, var fyrst fluttur í Sydney.
- 1886 - Tvö skip frá Reykjavík fórust í ofsaveðri og þrettán drukknuðu.
- 1916 - Goðafoss strandaði í hríðarveðri við Straumnes fyrir norðan Aðalvík á Hornströndum. Skipið náðist ekki aftur á flot en mannbjörg varð. Skipið var ekki orðið tveggja ára er það strandaði.
- 1939 - Vetrarstríðið hófst með því að Sovétríkin gerðu innrás í Finnland.
- 1943 - Hitaveita kom til Reykjavíkur frá Reykjum í Mosfellssveit og var fyrst tengt í Listasafn Einars Jónssonar.
- 1960 - Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Garðabæ.
- 1965 - Íslenskir bankar keyptu Skarðsbók á uppboði í London, en hún var þá eina forníslenska handritið í heiminum í einkaeigu.
- 1966 - Ríkissjónvarpið frumsýndi skákskýringarþáttinn Í uppnámi en þátturinn var einn fyrsti sjónvarpsþátturinn sem framleiddur var á Íslandi.
- 1995 - Javier Solana var skipaður yfirmaður NATO.
- 2006 - Fellibylurinn Durian gekk yfir Filippseyjar.
- 2007 - Kárahnjúkavirkjun var gangsett við formlega athöfn.
- 2010 - Tilkynnt hverjir hlutu kosningu til Stjórnlagaþings 2011
- 2013 - Tilkynnt var um Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána, svokölluð skuldaleiðrétting verðtryggðra húsnæðislána almennings sem krafa hafði verið uppi um að eitthvað yrði gert í allt frá bankahruninu 2008.
- 2013 - Tölvuhakkari braust inn í tölvukerfi Vodafone Ísland og náði trúnaðargögn viðskiptavina Vodafone, þar með talin SMS-skilaboðum og setti á netið.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1466 - Andrea Doria, ítalskur herforingi (d. 1560).
- 1667 - Jonathan Swift, enskur rithöfundur (d. 1745).
- 1699 - Kristján 6. Danakonungur (d. 1746).
- 1817 - Theodor Mommsen, þýskur fornfræðingur (d. 1903).
- 1835 - Mark Twain, bandarískur rithöfundur (d. 1910).
- 1868 - Haraldur Níelsson, íslenskur guðfræðingur (d. 1928).
- 1874 - Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands (d. 1965).
- 1937 - Ridley Scott, breskur kvikmyndaleikstjóri.
- 1965 - Ben Stiller, bandarískur leikari.
- 1967 - Styrmir Sigurðsson, íslenskur leikstjóri.
- 1982 - Lauren Cohan, bandarísk leikkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1016 - Játmundur járnsíða, Englandskonungur (f. 989).
- 1603 - William Gilbert, enskur vísindamaður (f. 1544).
- 1897 - Carl Richard Unger, norskur málfræðingur (f. 1817).
- 1900 - Oscar Wilde, írskt skáld (f. 1854).
- 1935 - Fernando Pessoa, portúgalskt ljóðskáld (f. 1888).
- 1986 - Emil Jónsson, forsætisráðherra Íslands (f. 1902).
- 2007 - J.L. Ackrill, enskur fornfræðingur (f. 1921).
|