4. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
4. ágúst er 216. dagur ársins (217. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 149 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1796 - Hannes Finnsson Skálholtsbiskup lést. Hann var einn menntaðasti Íslendingur sinnar tíðar. Af ritum hans má til dæmis nefna Um mannfækkun af hallærum á Íslandi.
- 1907 - Ungmennafélag Íslands var stofnað og var fyrsti formaður þess Jóhannes Jósefsson.
- 1914 - Fyrri heimsstyrjöldin: Þýskaland réðist á Belgíu. Í kjölfarið lýsti Bretland yfir stríði við Þýskaland. Bandaríkin lýstu yfir hlutleysi.
- 1928 - Ásta Jóhannesdóttir synti frá Viðey til Reykjavíkur. Sundið tók tæpar tvær klukkustundir og er um fjórir kílómetrar.
- 1947 - Hæstiréttur Japans var stofnaður.
- 1984 - Efri-Volta tók upp nafnið Búrkína Fasó.
- 1993 - Alríkisdómari dæmdi tvo lögreglumenn frá Los Angeles í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á réttindum Rodney King.
- 2007 - NASA sendi geimfarið Fönix út í geiminn.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1804 - Karl Friedrich Hermann, þýskur fornfræðingur (d. 1855).
- 1805 - William Rowan Hamilton, írskur stærðfræðingur (d. 1865).
- 1949 - Magnús Kjartansson, íslenskur myndlistarmaður (d. 2006).
- 1955 - Steingrímur J. Sigfússon, stjórnmálamaður.
- 1961 - Barack Obama, Bandaríkja forseti.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1526 - Juan Sebastián Elcano, baskneskur landkönnuður (f. 1476).
- 1796 - Hannes Finnsson, biskup í Skálholti (f. 1739).
- 1875 - H.C. Andersen, danskur rithöfundur (f. 1805).
- 1997 - Jeanne Calment, langlífasta kona heims að talið er (f. 1875).
|