16. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
16. júlí er 197. dagur ársins (198. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. Þá eru 168 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1627 - Tyrkjaránið: 242 manns voru numin brott frá Vestmannaeyjum af sjóræningjum frá Algeirsborg og seld í þrældóm. Auk þeirra voru 36 drepin.
- 1661 - Fyrstu peningaseðlar í Evrópu voru gefnir út af Stokkhólmsbanka.
- 1930 - Haile Selassie, Eþíópíukeisari, undirritaði fyrstu stjórnarskrá Eþíópíu.
- 1933 - Alþingiskosningar voru haldnar.
- 1951 - Skáldsagan Catcher in the Rye eftir J. D. Salinger kom út í Bandaríkjunum. Flosi Ólafsson leikari þýddi hana á íslensku undir heitinu Bjargvætturinn í grasinu.
- 1990 - Yfir 1600 manns létust í jarðskjálfta á Filippseyjum.
- 1994 - Borgarastríðinu í Rúanda lauk.
- 1999 - Flugvél með John F. Kennedy yngri, Carolyn Bessette Kennedy eiginkonu hans og systur hennar fórst á Atlantshafi. Allir um borð létust.
- 2005 - Skáldsagan Harry Potter og blendingsprinsinn kom út á sama tíma um allan heim. 287.564 eintök seldust að meðaltali á hverri klukkustund fyrsta sólarhringinn.
- 2009 - Alþingi Íslendinga samþykkti með 33 atkvæðum gegn 28 (tveir sátu hjá) að senda umsókn um aðild til Evrópusambandsins. Allir flokkar voru klofnir í afstöðu nema Samfylkingin.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1723 - Joshua Reynolds, breskur málari (f. 1792).
- 1824 - Ludwig Friedländer, þýskur fornfræðingur (d. 1909).
- 1872 - Roald Amundsen, norskur landkönnuður (d. 1928).
- 1916 - Kristján frá Djúpalæk, íslenskt skáld (d. 1994).
- 1941 - Desmond Dekker, reggítónlistarmaður frá Jamaíka.
- 1963 - Norman Cook (Fatboy Slim), breskur tónlistarmaður.
- 1970 - Sigga Lund (Sigríður Lund Hermannsdóttir), útvarpskona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1918 - Anastasia, rússnesk prinsessa (f. 1901).
- 1985 - Heinrich Böll, þýskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1917).
- 1989 - Herbert von Karajan, austurrískur hljómsveitarstjóri (f. 1908).
- 1999 - John F. Kennedy yngri, (f. 1960).
|