7. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
7. júlí er 188. dagur ársins (189. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 177 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1211 - Suðurlandsskjálfti, margir bæir hrundu og 18 manns fórust.
- 1307 - Játvarður 2. varð konungur Englands.
- 1456 - Dómstóll skipaður af Kalixtusi III páfa felldi dóminn yfir Jóhönnu af Örk úr gildi og lýsti hana saklausa.
- 1637 - Hornsteinn var lagður að Sívalaturni í Kaupmannahöfn.
- 1874 - Á Akureyri var vígður Gudmannsspítali, sem var til húsa í Aðalstræti 14, en það er elsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi, reist 1836.
- 1915 - Konur fögnuðu nýfengnum kosningarétti sínum með hátíðarfundi á Austurvelli. Sama dag stofnuðu þær Landspítalasjóð Íslands.
- 1922 - Lúðrasveit Reykjavíkur var stofnuð upp úr lúðrafélögunum Hörpu og Gígju og er hún elsta starfandi lúðrasveit á Íslandi.
- 1941 - Bandaríkjaher kom til landsins og tók við vörnum þess af Bretum. Síðustu hermennirnir fóru héðan í apríl 1947.
- 1966 - U Thant, aðalritari Sameinuðu þjóðanna kom í tveggja daga heimsókn til Íslands.
- 1974 - Kútter Sigurfari var settur á byggðasafnið í Görðum á Akranesi.
- 1974 - Vestur-Þýskaland vann heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu þegar lið landsins sigraði Hollendinga 2-1.
- 1978 - Salómonseyjar fengu sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1983 - Ray Charles skemmti á Broadway ásamt 25 manna hljómsveit.
- 2005 - Fjórar sjálfsmorðssprengjuárásir urðu 56 manns að bana í London.
- 2007 - Heimsmet slegið í vatnsbyssuslag á Landsmóti UMFÍ í Kópavogi (Kópavogur). Fyrir þessu stóðu SPK og Útvarpsstöðin FM957
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1753 - Jean-Pierre Blanchard, franskur uppfinningamaður (f. 1809).
- 1860 - Gustav Mahler, austurrískt tónskáld (d. 1911).
- 1887 - Marc Chagall, rússneskur málari (d. 1985).
- 1907 - Robert A. Heinlein, bandarískur rithöfundur (d. 1988).
- 1924 - Benedikt Gröndal, stjórnmálamaður, forsætisráðherra Íslands (d. 2010).
- 1940 - Ringo Starr, breskur tónlistarmaður.
- 1949 - Shelley Duvall, bandarísk leikkona.
- 1959 - Billy Campbell, bandarískur leikari.
- 1968 - Jorja Fox, bandarísk leikkona.
- 1984 - Sigurður Arent Jónsson, listamaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1145 - Ketill Þorsteinsson, Hólabiskup (f. 1075).
- 1162 - Hákon herðabreiður, Noregskonungur.
- 1304 - Benedikt XI páfi (f. 1240).
- 1307 - Játvarður 1. Englandskonungur (f. 1239).
- 1770 - Högni Sigurðsson prestafaðir, íslenskur prestur (f. 1693).
- 1930 - Arthur Conan Doyle, skoskur rithöfundur (f. 1859).
- 1965 - Moshe Sharett, forsætisráðherra Ísraels (f. 1894).
- 1967 - Vivien Leigh, bresk leikkona (f. 1913).
- 1977 - Jakobína Johnson, vesturíslensk skáldkona (f. 1893).
- 2006 - Syd Barrett, breskur tónlistarmaður og einn stofnenda Pink Floyd (f. 1946).
|