2. desember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
2. desember er 336. dagur ársins (337. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 29 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1804 - Napóleon lét krýna sig Frakkakeisara.
- 1914 - Sigurður Eggerz, forsætisráðherra, sendi símskeyti til Íslands frá Kaupmannahöfn, 2000 orð og var það lengsta skeyti sem borist hafði til landsins. Þar sagði hann frá umræðum um stjórnarskrármálið og fánamálið á ríkisráðsfundi í Kaupmannahöfn.
- 1929 - Mikið austanveður gekk yfir Ísland og mældist lægsti loftþrýstingur hér á landi, 919,7 millibör, í Vestmannaeyjum.
- 1941 - Togarinn Sviði fórst með 25 manna áhöfn utan við Snæfellsnes.
- 1942 - Enrico Fermi tókst að koma af stað keðjuverkun kjarnaklofnunar í Chicago.
- 1953 - Elsti Íslendingur allra tíma fram að þessu andaðist í Hafnarfirði. Var það Helga Brynjólfsdóttir, 106 ára og 184 daga gömul. Halldóra Bjarnadóttir (d. 27. nóvember 1981) bætti met hennar 1980.
- 1971 - Sex arabísk furstadæmi gerðu með sér bandalag og mynduðu Sameinuðu arabísku furstadæmin.
- 1993 - Pablo Escobar, kólumbískur eiturlyfjabarón var skotinn til bana í Medellin.
- 2013 - Til skotbardaga kom á milli manns nokkurs og lögreglu í Árbæjarhverfi. Maðurinn varð fyrir skoti frá lögreglu og lést af völdum þess.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1877 - Benedikt Sveinsson (yngri), íslenskur stjórnmálamaður (d. 1954).
- 1930 - Gary Becker, bandarískur hagfræðingur.
- 1930 - Hilmar Guðlaugsson reykvískur borgarfulltrúi og fv. formaður Knattspyrnufélagsins Fram.
- 1939 - Soffía Jakobsdóttir, íslensk leikkona.
- 1955 - Einar K. Guðfinnsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1957 - Dagfinn Høybråten, norskur stjórnmálamaður.
- 1966 - Nökkvi Elíasson, íslenskur ljósmyndari.
- 1966 - Logi Bergmann Eiðsson, íslenskur fjölmiðlamaður.
- 1968 - Lucy Liu, bandarísk leikkona.
- 1978 - Nelly Furtado, kanadísk söngkona.
- 1978 - Chris Wolstenholme, enskur bassaleikari (Muse).
- 1981 - Britney Spears, bandarísk söngkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1547 - Hernán Cortés, spænskur landvinningamaður (f. 1485).
- 1887 - Robert Scott, breskur fornfræðingur (f. 1811).
|