24. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
24. júlí er 205. dagur ársins (206. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 160 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1896 - Fjórar nunnur komu til landsins og settust að í Reykjavík til þess að hjúkra sjúkum. Á Íslandi höfðu þá ekki verið starfandi nunnur síðan fyrir siðaskipti.
- 1956 - Ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks settist að völdum og sat í tvö ár undir forsæti Hermanns Jónassonar. Menntamálaráðherra varð Gylfi Þ. Gíslason og hélt hann því embætti í öllum ríkisstjórnum í 15 ár.
- 1961 - Júrí Gagarín, fyrsti geimfarinn, kom við á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Kúbu, skömmu eftir að hann fór í fyrstu geimferðina.
- 1982 - Á Skeiðarársandi fannst skipsflak, sem í fyrstu var talið vera flak gullskipsins Het Wapen van Amsterdam, sem fórst þar árið 1667. Í ljós kom að flakið var af þýskum togara frá árinu 1903.
- 1990 - Fyrra Persaflóastríðið: Íraskar hersveitir safnast saman við Kúveit.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1783 - Símon Bólívar, frelsishetja Suður-Ameríku (d. 1830).
- 1802 - Alexandre Dumas eldri, franskur rithöfundur (d. 1870).
- 1897 - Amelia Earhart, bandarískur flugmaður (d. 1937).
- 1902 - Sigurður S. Thoroddsen, íslenskur verkfræðingur, stjórnmálamaður og knattspyrnumaður (d. 1983).
- 1969 - Jennifer López, bandarísk leikkona og söngkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1742 - Nikulás Magnússon, íslenskur sýslumaður (f. 1700).
- 1991 - Isaac Bashevis Singer, pólskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1904).
|