14. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
14. febrúar er 45. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 320 dagar (321 á hlaupári) eru eftir af árinu. Víðsvegar um hinn vestræna heim er haldið uppá Valentínusardag þann 14 Febrúar, en hann er vestræn útgáfa af hinni rómversku hátíð Lupercaliu.
Efnisyfirlit
Helstu atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1130 - Innósentíus 2. varð páfi.
- 1613 - Elísabet Stúart, dóttir Jakobs 1. giftist Friðriki 5., kjörfursta í Pfalz.
- 1779 - James Cook drepinn af frumbyggjum á Sandvíkureyjum.
- 1859 - Óregon varð 33. fylki Bandaríkjanna.
- 1876 - Alexander Graham Bell sótti um einkaleyfi á símann, það gerði Elisha Gray líka.
- 1912 - Arisóna varð 48. fylki Bandaríkjanna.
- 1942 - Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) var stofnað.
- 1945 - Chile, Ekvador, Paragvæ og Perú gengu í Sameinuðu þjóðirnar.
- 1945 - Sýning var opnuð á málverkum Jóhannesar Kjarvals í Listamannaskálanum í Reykjavík.
- 1946 - Tölvan ENIAC ("Electronic Numerical Integrator and Computer"), var gangsett við Pennsylvaniu-háskóla.
- 1952 - Vetrarólympíuleikarnir 1952 hófust í Ósló í Noregi.
- 1961 - Frumefni 103, lárensín, var í fyrsta sinn framleitt við Kaliforníuháskóla í Berkeley.
- 1962 - Jacqueline Kennedy forsetafrú sýndi sjónvarpsáhorfendum Hvíta húsið.
- 1980 - Vetrarólympíuleikarnir 1980 hófust í Lake Placid í New York-fylki í Bandaríkjunum.
- 1989 - Ruholla Khomeini, leiðtogi Írans, hvatti múslima til að drepa Salman Rushdie fyrir skrif hans í bókinni Söngvar Satans.
- 1989 - Hið fyrsta af 24 gervitunglum í GPS-kerfinu var sett á braut um Jörðu.
- 2005 - Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanon, var myrtur.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1602 - Francesco Cavalli, ítalskt tónskáld (d. 1676).
- 1942 - Michael Bloomberg, borgarstjóri New York-borgar.
- 1945 - Hans-Adam II, fursti Liechtensteins.
- 1946 - Bernard Dowiyogo, forseti Nárú (d. 2003).
- 1951 - Kevin Keegan, enskur knattspyrnuleikari og -kappi.
- 1953 - Hans Krankl, austurriskur knattspyrnuleikari.
- 1970 - Simon Pegg, enskur leikari.
- 1972 - Rob Thomas, bandarískur tónlistarmaður (matchbox twenty).
- 1985 - Philippe Senderos, svissneskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1779 - James Cook, breskur landkönnuður og kortagerðarmaður (f. 1728).
- 1917 - Rögnvaldur Ólafsson, íslenskur arkitekt (f. 1874).
- 1943 - David Hilbert, þýskur stærðfræðingur (f. 1862).
- 2003 - Kindin Dolly, fyrsta klónaða spendýrið (f. 1996).
- 2005 - Rafik Hariri, líbanskur stjórnmálamaður (f. 1944).
- 2014 - Tom Finney, enskur knattspyrnuleikari (f. 1922).
Hátíðis- og tyllidagar[breyta | breyta frumkóða]
|