19. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
19. júní er 170. dagur ársins (171. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 195 dagar eru eftir af árinu. Á Íslandi er dagurinn helgaður kvenréttindum.
Efnisyfirlit
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1179 - Erlingur skakki féll í orrustunni á Kálfskinni í nágrenni Niðaróss.
- 1641 - Sænski herinn sigraði her keisarans í orrustunni við Wolfenbüttel.
- 1794 - Magnús Stephensen og fleiri stofnuðu Hið íslenska landsuppfræðingarfélag til þess að vinna að menningarmálum í landinu.
- 1870 - Upphaf fólksflutninganna miklu til Vesturheims er miðað við það að þrír íslenskir menn sem fóru frá Eyrarbakka komu til Quebec þennan dag.
- 1886 - Kaupfélag Eyfirðinga var stofnað.
- 1915 - Kristján 10. undirritaði nýja stjórnarskrá Íslands þar sem meðal annars var kveðið á um að allar íslenskar konur, 40 ára og eldri, hefðu kosningarétt og kjörgengi.
- 1920 - Nýja bíó í Reykjavík, sem starfað hafði í átta ár, tók í notkun nýtt kvikmyndahús.
- 1953 - Forseti Íslands undirritaði Mannréttindasáttmála Evrópu.
- 1960 - Keflavíkurganga á vegum hernámsandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
- 1967 - Hallveigarstaðir í Reykjavík voru teknir í notkun sem miðstöð kvennasamtaka á Íslandi.
- 1980 - Á aldarafmæli Jóhanns Sigurjónssonar var afhjúpaður minnisvarði um skáldið á Laxamýri í Þingeyjarsýslu.
- 1981 - Tveir eggjaþjófar með á annað hundrað andaregg í fórum sínum voru handteknir á leið úr landi á Keflavíkurflugvelli.
- 1982 - Minnisvarði um Ásgrím Jónsson listmálara var afhjúpaður í Rútsstaðahjáleigu í Gaulverjabæ, nú Flóahreppi, en þar var hann fæddur.
- 1987 - Nýtt útvarpshús var tekið í notkun af Ríkisútvarpinu við Efstaleiti í Reykjavík.
- 1990 - Konur fjölmenntu í Alþingishúsið til að halda upp á 75 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.
- 1994 - Björk Guðmundsdóttir hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi eftir að hún öðlaðist heimsfrægð.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1566 - Jakob 6. Skotakonungur (d. 1625).
- 1623 - Blaise Pascal, franskur stærðfræðingur, eðlisfræðingur og heimspekingur (d. 1662).
- 1858 - Johan Ferdinand Aasberg, danskur skipstjóri (d. ?).
- 1880 - Jóhann Sigurjónsson, leikskáld (d. 1919).
- 1896 - Tryggvi Magnússon íþróttamaður og formaður Knattspyrnufélagsins Fram (d. 1943).
- 1947 - Salman Rushdie, indverskur rithöfundur.
- 1953 - Össur Skarphéðinsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1959 - Örn Árnason, íslenskur leikari.
- 1959 - Christian Wulff, þýskur stjórnmálamaður og 10. forseti Þýskalands.
- 1964 - Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna.
- 1972 - Dagur B. Eggertsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1978 - Dirk Nowitzki, þýskur körfuknattleiksmaður.
- 1989 - Ögmundur Kristinsson, íslenskur knattspyrnumaður.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1983 - Vilmundur Gylfason, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1948).
- 1993 - William Golding, breskur rithöfundur (f. 1911).
Hátíðir[breyta | breyta frumkóða]
|