26. nóvember
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
26. nóvember er 330. dagur ársins (331. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 35 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1594 - Gefin var út tilskipun um að Grallarinn, messusöngsbók Guðbrands Þorlákssonar biskups á Hólum, skyldi notuð í báðum biskupsdæmunum.
- 1922 - Howard Carter og Carnarvon lávarður urðu fyrstir manna til að fara inn í gröf Tútankamons í yfir 3000 ár.
- 1941 - Sex japönsk flugmóðurskip lögðu úr höfn í undanfara árásarinnar á Perluhöfn.
- 1981 - Dagblaðið og Vísir sameinuðust og hófst þar með útgáfa DV.
- 1981 - Broadway, veitinga- og skemmtistaður við Álfabakka í Reykjavík, var opnaður.
- 1993 - Skilaboðaskjóðan, leikrit eftir Þorvald Þorsteinsson, var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu og var í gagnrýni Morgunblaðsins nefnd „fullkomið listaverk“.
- 2003 - Concorde flugvélarnar voru teknar úr notkun vegna einnar brotlendingar og vegna hryðjuverkanna 11. september 2001. Concorde vélarnar náðu allt að 2000 km/klst.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1735 - John Thomas Stanley, enskur ferðalangur (d. 1807).
- 1847 - María Fjodorovna, keisaraynja Rússlands (d. 1928).
- 1903 - Thor Thors, íslenskur sendiherra (d. 1965).
- 1948 - Elizabeth Blackburn, ástralsk-bandarísk lífvísindakona og nóbelsverðlaunahafi.
- 1950 - Ingólfur Björn Sigurðsson, íslenskur leikari.
- 1958 - Einar Eyjólfsson, íslenskur prestur.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1504 - Ísabella af Kastilíu (f. 1451).
- 1883 - Sojourner Truth, bandarísk baráttukona (f. 1797).
- 1940 - Pétur Halldórsson, borgarstjóri Reykjavíkur (f. 1887).
- 1984 - Jóhann Svarfdælingur, hæsti maður Íslandssögunnar (f. 1913).
|