30. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
30. mars er 89. dagur ársins (90. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 276 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1492 - Ferdinand og Ísabella gáfu út tilskipun um að allir Gyðingar sem ekki tækju rómversk-kaþólska trú skyldu yfirgefa Spán.
- 1533 - Thomas Cranmer varð erkibiskup af Kantaraborg.
- 1802 - Bólusetning við kúabólu var lögboðin á Íslandi og var það með fyrstu löndum til slíkrar lagasetningar.
- 1816 - Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað. Það gefur út Skírni, sem er elsta tímarit á Norðurlöndum.
- 1858 - Hymen Lipman fékk skráð einkaleyfi á blýanti með áföstu strokleðri.
- 1867 - Bandaríkin keyptu Alaska af Rússum fyrir 7,2 milljónir dollara.
- 1934 - Eldgos hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli og olli hlaupi í Skeiðará.
- 1945 - Síðari heimsstyrjöldin: Sovétmenn réðust inn í Austurríki og hertóku Vínarborg.
- 1949 - Alþingi Íslendinga samþykkti aðild landsins að NATO, en við það brutust út óeirðir á Austurvelli.
- 1981 - Ronald Reagan var skotinn í brjóstið fyrir utan hótel í Washington.
- 1985 - Mótefni gegn eyðniveiru fundust í fyrsta sinn í blóði Íslendings.
- 2006 - Mýraeldar komu upp á Hraunhreppi í Mýrasýslu og brunnu í yfir tvo sólarhringa. Þetta voru mestu sinueldar sem um er vitað á Íslandi og brunnu um 67 km2 lands.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1746 - Francisco Goya, listmálari (d. 1828)
- 1853 - Vincent van Gogh, listmálari (d. 1890)
- 1895 - Nikolaí Búlganín, foreti Sovétríkjanna (d. 1975)
- 1937 - Warren Beatty, leikari
- 1945 - Eric Clapton, tónlistarmaður
- 1962 - MC Hammer, bandarískur tónlistarmaður
- 1964 - Tracy Chapman, bandarískur söngvari
- 1968 - Céline Dion, söngkona
- 1973 - Auður Jónsdóttir, rithöfundur.
- 1979 - Norah Jones, bandarísk söngkona.
- 1982 - Jason Dohring, bandarískur leikari.
- 1990 - Stella Sigurðardóttir, íslensk handknattleikskona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1986 - James Cagney, leikari
- 2002 - Elísabet drottningarmóðir.
|