31. mars
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
31. mars er 90. dagur ársins (91. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 275 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1863 - Kona kaus í fyrsta sinn í bæjarstjórnarkosningum á Íslandi og var það Maddama Vilhelmina Lever á Akureyri.
- 1889 - Eiffelturninn var vígður.
- 1905 - Gull fannst við jarðborun í Vatnsmýri við Öskjuhlíð í Reykjavík. Magnið var of lítið til að vera vinnanlegt.
- 1909 - Björn Jónsson tók við ráðherraembætti af Hannesi Hafstein. Björn sat í tvö ár.
- 1909 - Serbía viðurkenndi yfirráð Austurríkis yfir Bosníu-Hersegóvínu.
- 1917 - Bandaríkin keyptu Dönsku Vestur-Indíur af Dönum og borguðu 25 milljónir dollara fyrir. Síðan hafa eyjarnar heitið Bandarísku Jómfrúreyjar.
- 1931 - Jarðskjálfti lagði Managva í Níkaragva í rúst og 2.000 manns dóu.
- 1955 - Togarinn Jón Baldvinsson strandaði við Reykjanes. Allri áhöfninni var bjargað, 42 mönnum.
- 1959 - Tenzin Gyatso, fjórtándi Dalaí Lama, fékk pólitískt hæli á Indlandi.
- 1966 - Sovétríkin skutu upp geimfarinu Luna 10 og komu því á sporbaug um tunglið.
- 1967 - Á Raufarhöfn mældist 205 cm snjódýpt og þykir það með fádæmum í þéttbýli á Íslandi.
- 1979 - Steingrímur Hermannsson tók við af Ólafi Jóhannessyni sem formaður Framsóknarflokksins.
- 1989 - Línuhraðall, tæki til geislameðferðar vegna krabbameina, var tekinn í notkun á Landspítala Íslands.
- 1991 - Varsjárbandalagið var leyst upp.
- 2006 - Menntaskólinn í Reykjavík sigrar Morfís það árið.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1519 - Hinrik 2. Frakkakonungur (d. 1559)
- 1596 - René Descartes, heimspekingur og stærðfræðingur (d. 1650)
- 1723 - Friðrik V Danakonungur (d. 1766)
- 1732 - Joseph Haydn, austurrískt tónskáld (d. 1809)
- 1781 - Bjarni Thorsteinsson, amtmaður (d. 1876)
- 1809 - Nikolaj Gogol, rithöfundur (d. 1852)
- 1914 - Octavio Paz, rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1998)
- 1934 - Shirley Jones, bandarísk leikkona.
- 1935 - Richard Chamberlain, leikari
- 1939 - Zviad Gamsakhurdia, forseti Georgíu (d. 1993).
- 1943 - Christopher Walken, leikari
- 1948 - Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
- 1971 - Ewan McGregor, leikari
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1748 - Árni Hallvarðsson, prestur á Hvalsnesi á Suðurnesjum (f. 1712).
- 1837 - John Constable, enskur listmálari (f. 1776)
- 1855 - Charlotte Brontë, enskur rithöfundur (f. 1816)
- 1917 - Emil von Behring, þýskur örverufræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1854).
- 1945 - Anna Frank, dagbókarhöfundur (f. 1929)
- 1980 - Jesse Owens, bandarískur íþróttamaður (f. 1913)
- 1988 - William McMahon, færsætisráðherra Ástralíu (f. 1908)
- 1993 - Brandon Lee, bandarískur leikari (f. 1965)
- 1995 - Selena, bandarísk söngkona (f. 1971)
- 2009 - Raul Alfonsin, forseti Argentínu (f. 1927)
|