8. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
8. júlí er 189. dagur ársins (190. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 176 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1362 - Grundarbardagi á Grund í Eyjafirði, en þar fóru Eyfirðingar að Smiði Andréssyni hirðstjóra og mönnum hans og drápu þá.
- 1497 - Vasco da Gama hélt upp í fyrsta leiðangur sinn til Indlands umhverfis Afríku.
- 1853 - Koma Matthew C. Perry og svörtu skipanna til Japans.
- 1903 - Upphaf síldarsöltunar á Siglufirði. Síldarævintýrið sem þarna hófst stóð í 65 ár.
- 1922 - Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin á þing fyrst kvenna og tók hún sæti á Alþingi 15. febrúar 1923.
- 1926 - Ríkisstjórn undir forsæti Jóns Þorlákssonar settist að völdum og sat í rúmt ár.
- 1951 - Tveir íþróttamenn slösuðust mikið og aðrir tveir biðu bana í Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar er bjarg lenti á 30 manna rútu sem þeir voru í.
- 1987 - Ríkisstjórn undir forsæti Þorsteins Pálssonar settist að völdum og sat í rúmt ár. Jóhanna Sigurðardóttir átti sæti í stjórninni og var hún þriðja konan til að gegna ráðherraembætti á Íslandi.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1621 - Leonora Christina Ulfeldt, dóttir Kristjáns 4. (d. 1698).
- 1938 - Ragnar Arnalds, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1959 - Tom Egeland, norskur rithöfundur.
- 1980 - Auðunn Blöndal, íslenskur leikari og skemmtikraftur.
- 1998 - Jaden Smith, bandarískur leikari og söngvari, sonur Will Smith
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1695 - Christiaan Huygens, hollenskur stærðfræðingur (f. 1629).
|