Malakkasund

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
Kort sem sýnir Malakkasund

Malakkasund er mjótt og grunnt 805km langt sund milli Malakkaskaga og Súmötru í Suðaustur-Asíu. Það heitir eftir Soldánsdæminu Malakka sem réði yfir sundinu á 15. öld. Sundið er ein af mikilvægustu siglingaleiðum heims á leiðinni milli Indlandshafs og Kyrrahafs. Sundið er 1,5 sjómílur að breidd þar sem það er grennst og aðeins 25m á dýpt þar sem það er grynnst. Það er því of grunnt til að sum af stærstu flutningaskipum heims geti siglt um það.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Einkennismerki Wikiorðabókar
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.