27. febrúar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
27. febrúar er 58. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 307 dagar (308 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1534 - Anabaptistar undir forystu Jan Matthys tóku yfir borgina Münster í Þýskalandi og lýstu yfir stofnun Nýju Jerúsalem.
- 1638 - Skammvinnt eldgos varð „í fjöllum, eyðimörkum og óbyggðum“ austanlands, eins og Sjávarborgarannáll segir frá.
- 1700 - Eyjan Nýja-Bretland var uppgötvuð.
- 1927 - Kolakrani var reistur í Reykjavíkurhöfn. Hann var þá talinn með fullkomnustu slíkum tækjum á Norðurlöndum. Kraninn stóð í tæplega 41 ár (til 17. febrúar 1968).
- 1928 - Togarinn Jón forseti strandaði við Stafnes. Fimmtán skipverjar fórust en tíu var bjargað.
- 1933 - Reichstag þinghúsið í Berlín brann til grunna.
- 1941 - Togarinn Gullfoss frá Reykjavík fórst með allri áhöfn, 19 manns, út af Snæfellsnesi.
- 1953 - Í Hnífsdal fauk barnaskólahúsið af grunni í ofviðri og splundraðist. Í húsinu voru tveir kennarar og 36 börn og slösuðust sum barnanna.
- 1964 - Ríkisstjórn Ítalíu bað um aðstoð til að varna því að Skakki turninn félli á hliðina.
- 1974 - People Magazine kom út í fyrsta sinn.
- 1975 - Hornstrandir norðan og vestan Skorarheiðar í Norður-Ísafjarðarsýslu voru friðlýstar.
- 1977 - Skákeinvígi Boris Spasskí og Vlastimíl Hort hófst.
- 1991 - Írak hörfaði frá Kúveit og samþykkti vopnahlé sem kallaði á að landið afvopnaðist.
- 1999 - Olusegun Obasanjo var kosinn forseti Nígeríu í fyrstu forsetakosningum í landinu frá árinu 1983.
- 2010 - Jarðskjálfti sem mældist 8,8 á Richter skók Síle. Skjálftaflóðbylgja myndaðist við skjálftann og dreifðist hún út um Kyrrahaf.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 272 - Konstantínus mikli, keisari Rómaveldis (d. 337).
- 1861 - Rudolf Steiner, austurrískur heimspekingur (d. 1925).
- 1881 - Sveinn Björnsson, 1. forseti Íslands (d. 1952).
- 1902 - John Steinbeck, bandarískur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1968).
- 1913 - Paul Ricœur, franskur heimspekingur (d. 2005).
- 1914 - Ási í Bæ, texta- og lagahöfundur (d. 1985).
- 1928 - Ariel Sharon, fyrrverandi Forsætisráðherra Ísraels (d. 2014).
- 1932 - Elizabeth Taylor, bresk-bandarisk leikkona (d. 2011).
- 1966 - Baltasar Kormákur, islenskur leikari og leikstjóri.
- 1978 - James Beattie, enskur knattspyrnumaður.
- 1980 - Bobby Valentino, bandarískur söngvari.
- 1980 - Chelsea Clinton, dóttir Bills Clinton.
- 1981 - Josh Groban, bandarískur söngvari.
- 1996 - Sylvía Erla Scheving, íslensk söngkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1465 - Jón Stefánsson Krabbe, Skálholtsbiskup.
- 1936 - Ívan Petrovítsj Pavlov, rússneskur lífeðlisfræðingur (f. 1849).
- 2015 - Leonard Nimoy, bandariskur leikari (f. 1931).
|