5. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
5. október er 278. dagur ársins (279. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 87 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1143 - Konungsríkið León viðurkenndi sjálfstæði Portúgals.
- 1568 - Vilhjálmur þögli réðist inn í suðausturhluta Hollands.
- 1615 - Spánverjavígin: Hópur baskneskra hvalveiðimanna var drepinn við Skaganaust yst á Dýrafirði.
- 1897 - Barnablaðið Æskan hóf göngu sína.
- 1910 - Fyrsta lýðveldið var stofnað í Portúgal. Emmanúel 2. konungur landsins flúði til Englands.
- 1946 - Alþingi samþykkti að veita Bandaríkjunum afnot af landi á Miðnesheiði. Samningurinn olli miklum deilum.
- 1946 - Melaskóli hóf starfsemi sína.
- 1949 - Dregið var í fyrsta sinn í Vöruhappdrætti SÍBS.
- 1963 - Hljómsveitin Hljómar frá Keflavík kom opinberlega fram í fyrsta skipti.
- 1984 - Hjónin Eiríkur J. Eiríksson og Kristín Jónsdóttir gáfu Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi bókasafn sitt með um 30 þúsund bindum. Er þetta talin mesta bókagjöf á Íslandi.
- 1989 - Dalai Lama hlaut friðarverðlaun Nóbels.
- 1991 - Blönduvirkjun var vígð.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1713 - Denis Diderot, franskur heimspekingur (d. 1784).
- 1781 - Bernard Bolzano, tékkneskur stærðfræðingur (d. 1848).
- 1829 - Chester A. Arthur, bandarikjaforseti (d. 1886)
- 1923 - Albert Guðmundsson, knattspyrnu- og stjórnmálamaður (d. 1994).
- 1936 - Vaclav Havel, forseti Tekkoslovakiu og Tekklands (d. 2011).
- 1959 - Róbert H. Haraldsson, íslenskur heimspekingur.
- 1965 - Vigdís Gunnarsdóttir, íslensk leikkona.
- 1969 - Ásta Kristjana Sveinsdóttir, heimspekingur.
- 1975 - Kate Winslet, bresk leikkona.
- 1977 - Vigdís Hrefna Pálsdóttir, íslensk leikkona.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1968 - Jóhannes Jósefsson, íslenskur glímukappi (f. 1883).
- 2004 - Maurice Wilkins, breskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1916).
- 2005 - Bjarni Þórir Þórðarson, íslenskur tónlistarmaður (f. 1966).
- 2011 - Steve Jobs, bandarískur frumkvöðull og hugvitsmaður á sviði tæknivísinda (f. 1955).
|