Eþíópía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stökkva á: flakk, leita
የኢትዮጵያ ፈደራላዊ ዲሞክራሲያዊ ሪፐብሊክ
Ityop'iya Federalawi Demokrasiyawi Ripeblik
Fáni Eþíópíu Skjaldamerki Eþíópíu
Fáni Skjaldarmerki
Þjóðsöngur:
Whedefit Gesgeshi Woude Henate Ethiopia
Staðsetning Eþíópíu
Höfuðborg Addis Ababa
Opinbert tungumál amharíska
Stjórnarfar Sambandsríki
Mulatu Teshome Wirtu
Hailemariam Desalegn
Stofnun ríkis
 - Dʿmt um 980 f.Kr. 
 - Konungsríkið Aksúm um 100 e.Kr. 
 - Eþíópíska keisaradæmið 1137 
Flatarmál
 - Samtals
 - Vatn (%)
27. sæti
1.104.300 km²
0,7
Mannfjöldi
 - Samtals (2014)
 - Þéttleiki byggðar
14. sæti
96.633.458
87,5/km²
VLF (KMJ)
- Samtals
- á mann
áætl. 2012
109 millj. dala (69. sæti)
1.300 dalir (169. sæti)
VÞL (2011) Green Arrow Up.svg 0.396 (173. sæti)
Gjaldmiðill birr (ETB)
Tímabelti UTC +3
Þjóðarlén .et
Landsnúmer 251

Eþíópía eða Etíópía (amharíska: ኢትዮጵያ Ityop'iya) er landlukt land í Austur-Afríku við horn Afríku með landamæriErítreu og Djíbútí í norðri, Súdan og Suður-Súdan í vestri, Kenýa í suðri og Sómalíu í austri. Hluti Eþíópíu er háslétta með fjallgarði í miðið sem skiptist í tvennt við Sigdalinn mikla. Bláa Níl, meginkvísl Nílar rennur úr Tanavatni í norðvesturhluta landsins.

Eþíópía er næstfjölmennasta ríki Afríku með tæplega 96,6 milljón íbúa og með tíunda stærsta landsvæði álfunnar, yfir 1.104.300 km2. Höfuðborgin er Addis Ababa. Landið er fjölmennasta landlukta land í heimi.

Opinbert heiti landsins er Sambandslýðstjórnarlýðveldið Eþíópía (Ityop'iya Federalawi Demokrasiyawi Republik). Landið er sambandslýðveldi níu þjóðríkja. Í landinu eru meira en 70 mismunandi þjóðflokkar: orómóar telja 40%, amharar og tígrar 32%, sidamóar 9%, sjankellar 6%, sómalir 6%, afar 4%, gúragar 2%, og aðrir telja 1%. Íbúarnir eru mjög ólíkir innbyrðis. Orómóar, amharar og tígrar eru meira en þrír fjórðu landsmanna. Þar er töluð amharíska og ýmis staðbundin mál, eins og orómifa og tígrinja. Tæpur helmingur landsmanna eru múslimar, 35-40% tilheyra eþíópísku rétttrúnaðarkirkjunni, 12% aðhyllast hefðbundin trúarbrögð og 3-8% tilheyra öðrum trúflokkum.

Eþíópía á sér einna lengsta þekkta sögu allra Afríkulanda og er talin ein elsta þjóð í Afríku. Hún var eina ríkið sem hélt sjálfstæði sínu í slagnum um Afríku, allt þar til Ítalir réðust inn í landið 1936. Breskar og eþíópískar hersveitir sigruðu Ítali 1941 og Eþíópía fékk aftur sjálfstæði 1944.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.