Mikhail Kalashnikov
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mikhail Timofeyevich Kalashnikov (10. nóvember 1919 – 23. desember 2013) var rússneskur vopnahönnuður. Hann hannaði hríðskotabyssuna AK-47 sem náði gríðarlegri útbreiðslu á síðari hluta 20. aldar.