Laugardalsvöllur

Þjóðarleikvangur Íslands

Íslensku karla- og kvennalandsliðin leika flesta sína leiki á Laugardalsvelli. Einnig er algengt að eitt til tvö félög leiki heimaleiki sína á vellinum á meðan þau eru í efstu deild karla. Aðrir leikir sem fara fram á Laugardalsvelli eru úrslitaleikir í bikarkeppni karla og kvenna, auk flestra Evrópuleikja félagsliða.

Laugardalsvöllur

Byggingarsaga

  • 1957 - Fyrsti landsleikurinn leikinn á Laugardalsvelli 8. júlí gegn Norðmönnum.
  • 1957 - Fyrsti deildarleikurinn leikinn á Laugardalsvelli 25. ágúst, ÍA gegn Fram. 
  • 1959 - Laugardalsvöllur vígður 17. júní. Ásgeir Ásgeirsson, forseti Íslands, setti vígsluhátíðina.
  • 1961 - Baldurshagi tekinn í notkun.
  • 1965-1970 - Vesturstúkan stækkuð og yfirbyggð.
  • 1992 - Lögð tartanbraut með 8 hlaupabrautum. Flóðljós vígð í október.
  • 1997 - Nú stúka byggð að austanverðu.
  • 1997 - KSÍ flytur skrifstofur sínar í nýja aðstöðu undir sunnanverðri Vesturstúku.
  • 2005 - Vinna hafin við endurbætur og stækkun á Vesturstúku og byggingu nýrrar skrifstofuaðstöðu KSÍ.
  • 2007 - Höfuðstöðvar KSÍ fluttar í nýja skrifstofuaðstöðu.
  • 2007 - Baldurshaga breytt úr frjálsíþróttaaðstöðu í skylmingaaðstöðu.
  • 2007 - Endurbótum og stækkun Vesturstúku lokið.

Stærð keppnisvallar

  • 105 x 68 metrar og fullkomin 8 brauta frjálsíþróttaaðstaða.

Áhorfendur

  • Austurstúka- 3.500 númeruð sæti
  • Vesturstúka - 6.300 númeruð sæti
  • Heildarfjöldi - 9.800

Mesti áhorfendafjöldi

  • 20.204 á leik Íslands og Ítalíu,18. ágúst 2004 - Selt í stæði
  • Um 25.000 á tónleikum 17. ágúst 2007.

Aðstaða fyrir kappleiki og mót

  • 4 búningsklefar (20 m2 hver).
  • 2 dómaraklefar (16m2 hvor) og/eða aðstaða fyrir lækni/lyfjapróf.
  • 2 herbergi til yfirstjórnar á leikjum og frjálsíþróttamótum.

Flóðljós

  • Á vellinum eru fjögur 46 metra há möstur.
  • Í hverju mastri eru 38 * 2.000 watta kastarar.
  • Grindin sem kastararnir eru í er u.þ.b. 5x5 metrar. 
  • Lýsinguna er hægt að stilla á þrjá vegu, 200, 400 og 800 lúx.
  • Flóðljósin voru vígð fyrir landsleik Íslands við Grikkland, 7. október 1992.

Annað

Miðasala með 8 sölubásum þar sem allt er selt í gegnum internetið.  Einnig hægt að kaupa e-miða í gegnum internetið á alla stærri leiki.  Allir miðar með strikamerki og skannaðir við innganginn.

Fast hljóðkerfi með 16 hátölurum í stúku og 8 í veitingarými í Melavelli.  Í stúku austur er leigt kerfi í stærri leikjum.

Aðstaða fyrir 20 hjólastóla í A og I hólfum.

Heiðursstúka tekur 250 gesti.  Aðgengi er í 4 sali á 3. hæð sem alls eru um 800 m2 og með sér salernisaðstöðu.

Öryggismyndavélakerfi þar sem 7 vélar snúa að áhorfendum í stúkum, innanhúss eru 13 (leikmannagangur, Baldurshagi 3, Melavöllur 6, aðalinngangur, N- inngangur og S- inngangur), aftan við austurstúku eru 4 og framan við aðalstúku eru 4.  Alls 28 vélar

Sjónvarpsmyndavélakerfi:  Fast dregið fyrir eftirfarandi vélum.  Stúdíói norður 2 vélar, stúdíó suður 2, á þaki 2, 16 metrar 2, í VIP 2, við leikmannainngang 3, í suðurenda kjallara 5, í norðurenda 1 og í Baldurshaga 2.  Alls lagt fyrir 21 vél.

Blaðamannaaðstaða á þaki í 4 húsum fyrir 5 manns hvert alls 20 sæti og úti í stúku eru 48 sæti fyrir skrifandi blaðamenn.  Innan við blaðamannaaðstöðu í stúku er 100 m2 herbergi fyrir 25 skrifandi blaðamenn og kaffiaðstaða.  Í suðurenda í kjallara er aðstaða fyrir 17 ljósmyndara, 10 í sitjandi aðstöðu og 7 í standandi með sér skáp fyrir búnað ljósmyndara.  Þráðlaust netsamband og rafmagnstenglar eru við allar vinnustöðvar.

Tvö 12 og 15 m2 myndver fyrir sjónvarp á 3. hæð

Bílaplan fyrir sjónvarpsbíla er 600 m2 við suðurenda stúku vestur

Bílastæði eru um 1.800 í Laugardalnum, þar af 630 fyrir utan Laugardalsvöll(sjá mynd hér að neðan)

10 fánastangir við völl, 5 fram við stúku og allt að 13 fánaborgir (x 5 fánar) eru til að staðsetja niðri við völl.

Símar

  • Vallarstarfsmenn - 510 2914, 510 2916 og 510 2917 
  • Vallarstjóri - 510 2915
  • Fax - 568 9793

Hólf á Laugardalsvelli

....

Bílastæði í Laugardal

Yfirlitsmynd yfir Laugardalinn

 






Aðildarfélög




Aðildarfélög