Skiptir miklu máli að vera fyrstur
„Mér finnst skipta mjög miklu máli að geta verið fyrirmynd einhverra sem eiga erfitt með að viðurkenna eða sætta sig við kynhneigð sína,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, nýr umhverfisráðherra en hann verður fyrsti samkynhneigði karlráðherra þjóðarinnar.
mbl.is ræddi við Guðmund Inga í dag en hann segir að Katrín Jakobsdóttir hafi fyrst borið það upp við hann að verða ráðherra í gær. Hlutirnir hafa því breyst hratt hjá honum undanfarinn sólarhring.
Guðmundur Ingi er með BSc próf í líffræði frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í umhverfisfræðum frá Yale háskóla í Bandaríkjunum. Hann var framkvæmdastjóri Landverndar 2011-2017 er hann tók við starfi umhverfis- og auðlindaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Guðmundur Ingi hefur áður starfað við rannsóknir í vist- og umhverfisfræðum við Háskóla Íslands og við alþjóðamál og rannsóknir hjá Landgræðslu ríkisins. Þá starfaði hann á Veiðimálastofnun á Hólum í Hjaltadal á námsárum sínum. Guðmundur Ingi hefur verið stundakennari í nokkrum námskeiðum við Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólasetur Vestfjarða síðan 2006. Guðmundur Ingi hefur einnig starfað sem landvörður á Þingvöllum og í Vatnajökulsþjóðgarði.
Guðmundur Ingi tók þátt í að stofna Félag umhverfisfræðinga á Íslandi og var fyrsti formaður félagsins frá 2007 til 2010. Guðmundur Ingi er núverandi formaður Félags Fulbright styrkþega á Íslandi.
Innlent »
Föstudagur, 2.8.2019
- Björgvin Karl áttundi eftir annan dag
- Bílstjórinn lýsir veltunni í smáatriðum
- „Við erum í kappi við tímann“
- 50 grindhvalir við fjöruna í Garði
- Elsti ökumaðurinn 99 ára karl
- Grunur um reykeitrun hjá tveimur
- Tún slegin til að koma fyrir tjöldum
- Brynjar Ari vann tvær þrautir í dag
- Landeigendur varna verktökum vegar
- Tóku höndum saman og keyptu píanó
- Skilji ekki alvarleika orða sinna
- Þjóðhátíð sett í Herjólfsdal
- Hálfnaður á 11.000 km leið
- Sex þúsund fara með Herjólfi í dag
- Hlaupið með byrðar í þrúgandi hita
- Beinist ekki gegn blaðamanni
- Umferð gengið vel í dag
- Áfram í haldi vegna vopnaðs ráns
- Stefnt til að halda máli leyndu
- Rannsókninni miðar vel
- Eitt skref í einu og byrja á íssölunni
- Fljúga ekki til Akureyrar frá Keflavík
- Takmarka umferð við náttúruperlur
- Bakpokahlaup á heimsleikum
- Sýkt börn geta smitað í mánuði
- MAX-áhrifin metin á 17 milljarða
- Brotlegir þingmenn fari í leyfi
- „Tækifærin hverfa ekki“
- Sýna að ekkert er óyfirstíganlegt
- Uppsagnir ekki á teikniborðinu
- Ákærðir fyrir meiri háttar skattsvik
- Vinna úr gögnum um eldinn
- Hitatölur á hægri niðurleið
- Fyrsti gesturinn hnúfubakur
- 87% segja loftslagsbreytingar af mannavöldum
- Bróðir Jóns fluttur til Dyflinnar
- Hvítu tjöldin reist fyrir Þjóðhátíð
- Fasteignamarkaður á Akureyri í hringekju
- Færeyskt skip stöðvað
- Kýldi lögreglumann á frívakt
- Ákvörðunin ógild
- Ferðahelgi nálgast
- Dregur úr aukningu umferðar
- Skipin lífga upp á mannlífið á Ísafirði
- Díselolía fór í settjörn í Elliðaárdal
- Andlát: Valgarð Briem
- Fjárhæðirnar ekki tapaðar
- Vanáætlun veldur hækkun á íbúðum
- Bílstjórinn lýsir veltunni í smáatriðum
- 55 gámar með Ed Sheeran
- Björguðu um þrjátíu hvölum úr fjörunni
- Tekinn á 176 km hraða á Suðurlandi
- Leið eins og fertugum karli
- Íhuga hópmálsókn gegn FEB
- Brátt hægt að skoða steinbryggjuna
- Mestar líkur á sól á Vesturlandi
- Grindhvalur strand við Voga
- „Við erum í kappi við tímann“