Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Thamnocalamus spathaceus
Ættkvísl   Thamnocalamus
     
Nafn   spathaceus
     
Höfundur   (Franch.) Söderstr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gulbambus
     
Ætt   Poaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær bambus (gras)
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi, skjól
     
Blómlitur   fölgulgrænn dökknar með aldri
     
Blómgunartími   (síðsumars)
     
Hæð   1-2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   grannir beinir stönglar í fyrstu en greinast síðar og bera sveigðar hangandi hliðargreinar, laufblöðin eplagræn, lensulaga, stilkuð, 7-12cm löng og 1-1.5cm á breidd
     
Heimkynni   M Kína
     
Jarðvegur   rakur, Þarf mikla vökvun, meðalfrjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   undir húsvegg, við grindverk, fjölær beð, gróðurskála
     
Reynsla   Hefur Þrifist vel í Simsonsgarði á Ísafirði, í GR og víðar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is