Eurovision: Fyrri undanúrslit

Eurovision: Fyrri undanúrslit

18.05.2021 - 18:30

Höfundar

Mikið er um dýrðir í Ahoy-höllinni í Rotterdam í kvöld þar sem fyrri undanúrslit Eurovision fara fram klukkan sjö að íslenskum tíma. Sextán atriði stíga á svið og eftir símakosningu kemur í ljós hvaða tíu þjóðir verða á meðal þeirra sem keppa til úrslita á laugardag.

Ef eitthvað er að marka veðbanka í ár verður keppnin mjög jöfn og spennandi, og ljóst er að hvert einasta atriði á sér hóp af aðdáendum. Það er því von á hörkukeppni um sætin tíu. Gísli Marteinn Baldursson lýsir því sem fram fer fyrir íslenskumælandi áhorfendum. Einnig verður hægt að fylgjast með keppninni með enskri lýsingu hér.

Þjóðirnar sem freista þess í kvöld að komast í úrslitin eru:

  • Litáen
  • Slóvenía
  • Rússland
  • Svíþjóð
  • Ástralía
  • Norður-Makedónía
  • Írland
  • Kýpur
  • Noregur
  • Króatía
  • Belgía
  • Ísrael
  • Rúmenía
  • Aserbaísjan
  • Úkraína
  • Malta

Á fimmtudag flytja svo Daði Freyr og Gagnamagnið lagið 10 Years fyrir hönd Íslendinga og þá mega landsmenn taka þátt í símakosningunni.

Here you can watch tonight's Eurovision Song Contest with English commentary.

Tengdar fréttir

Menningarefni

Hvað gerist í fyrri undanúrslitum Eurovision í kvöld?