24. ágúst
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
24. ágúst er 236. dagur ársins (237. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 129 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 79 - Vesúvíus gaus. Borgirnar Pompeii, Herculaneum og Stabiae grófust í ösku.
- 1215 - Innósentíus 3. páfi lýsti Magna Carta ógilt.
- 1572 - Bartólómeusarvígin í París. Kaþólikkar myrtu þúsundir húgenotta samkvæmt skipun Karls 9..
- 1841 - Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld, lést 54 ára gamall. Jónas Hallgrímsson orti um hann erfiljóð sem hefst þannig: Skjótt hefur sól brugðið sumri...
- 1906 - Ritsími á milli Skotlands og Íslands um Hjaltland og Færeyjar var opnaður og var sæsímastrengurinn 534 sjómílur á lengd.
- 1944 - Sveinn Björnsson, forseti Íslands, og Franklin D. Roosevelt, forseti Bandaríkjanna, ræddust við í Hvíta húsinu í Washington, en Sveinn var í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum.
- 1968 - Norræna húsið í Reykjavík var vígt. Finnski arkitektinn Alvar Aalto teiknaði bygginguna. Norðmaðurinn Ivar Eskeland var ráðinn fyrsti forstöðumaður hússins.
- 1980 - Fyrstu alþjóðlegu rallkeppni á Íslandi lauk eftir fimm daga keppni.
- 1983 - Fjölmennur fundur í Reykjavík, sem haldinn var í veitingahúsinu Sigtúni af svokölluðum Sigtúnshópi, krafðist breytinga á húsnæðislánakerfinu.
- 1991 - Úkraína fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
- 2006 - Á þingi Alþjóðasambands stjarnfræðinga var samþykkt að telja Plútó ekki lengur til reikistjarna sólkerfisins.
- 2008 - Ísland vann silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking 2008
- 2012 - Dómur var kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik, sem myrti 77 manns sumarið 2011, með öflugri bílasprengju í miðborg Oslóar og svo með skotárásum í Útey.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1198 - Alexander 2. Skotakonungur (d. 1249).
- 1635 - Peder Schumacher Griffenfeld, danskur stjórnmálamaður (d. 1699).
- 1896 - Jón Kaldal, íslenskur ljósmyndari (d. 1981).
- 1899 - Jorge Luis Borges, argentínskur rithöfundur og skáld (d. 1986).
- 1938 - Halldór Blöndal, alþingismaður.
- 1942 - Magnús Birgir Jónsson, íslenskur búfræðingur.
- 1948 - Alexander McCall Smith, breskur rithöfundur.
- 1957 - Stephen Fry, breskur leikari.
- 1964 - Svandís Svavarsdóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1988 - Rupert Grint, breskur leikari.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 79 - Plinius eldri, rómverskur rithöfundur (f. 23).
- 1794 - Björn Halldórsson, prestur í Sauðlauksdal (f. 1724).
- 1841 - Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld (f. 1786).
- 1888 - Rudolf Clausius, þýskur eðlisfræðingur (f. 1822).
- 2014 - Richard Attenborough, breskur leikari og kvikmyndaleikstjori (f. 1923).
|