31. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
31. október er 304. dagur ársins (305. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 61 dagur er eftir af árinu.
Efnisyfirlit
Atburðir[breyta | breyta frumkóða]
- 1517 - Marteinn Lúther hengdi skjal í 95 greinum á kirkjudyrnar í Wittenbergkastala og hóf með því siðbótina.
- 1654 - Friðrik María var krýndur kjörfursti í Bæjaralandi.
- 1817 - Í Reykjavík var minnst þriggja alda afmælis siðbótar Marteins Lúthers.
- 1931 - Akstur Stætisvagna Reykjavíkur hófst og var fyrsta leiðin Lækjartorg-Kleppur.
- 1934 - Hæstiréttur Íslands dæmdi Þórberg Þórðarson til að greiða 200 krónur í sekt fyrir meiðandi ummæli um Adolf Hitler og stjórn Þriðja ríkisins.
- 1936 - Þjóðviljinn hóf göngu sína og studdi Kommúnistaflokkinn og síðar Sósíalistaflokkinn og Alþýðubandalagið.
- 1964 - Á Miklatúni í Reykjavík var afhjúpuð stytta af Einari Benediktssyni til að minnast aldarafmælis skáldsins.
- 1975 - Marokkó sendir her sinn inn í Spænsku-Sahara í aðdraganda Grænu göngunnar.
- 1984 - Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, var myrt af lífvörðum sínum.
- 2011 - Mennta-, vísinda- og menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) samþykkti í kosningu að veita Palestínu aðild.
- 2011 - Mannfjöldinn á jörðinni náði 7 milljörðum samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna.
Fædd[breyta | breyta frumkóða]
- 1291 - Philippe de Vitry, franskt tónskáld (d. 1361).
- 1421 - Vladislás 3. Póllandskonungur (d. 1444).
- 1620 - John Evelyn, enskur dagbókarhöfundur (d. 1706).
- 1622 - Pierre Paul Puget, franskur listamaður (d. 1694).
- 1632 - Jan Vermeer, hollenskur listmálari (d. 1675).
- 1795 - John Keats, enskt skáld (d. 1821).
- 1864 - Einar Benediktsson, athafnaskáld (d. 1940).
- 1903 - Bertrand de Jouvenel, franskur stjórnmálaheimspekingur (d. 1987).
- 1922 - Norodom Sihanouk, konungur Kambódíu (d. 2012).
- 1930 - Michael Collins, bandarískur geimfari.
- 1935 - Hjörleifur Guttormsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1940 - Ragnhildur Óskarsdóttir eða Róska, íslensk listakona (d. 1996).
- 1940 - Pétur Einarsson, íslenskur leikari.
- 1949 - Bob Siebenberg, bandarískur tónlistarmaður (Supertramp).
- 1950 - John Candy, kanadískur leikari (d. 1994).
- 1955 - Guðmundur Árni Stefánsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1961 - Peter Jackson, nýsjálenskur leikstjóri.
- 1963 - Dunga, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1964 - Marco van Basten, hollenskur knattspyrnumaður.
- 1991 - Marianne Hasperhoven, hollensk fyrirsæta.
- 2005 - Elenóra Spánarprinsessa.
Dáin[breyta | breyta frumkóða]
- 1841 - Georg Anton Friedrich Ast, þýskur heimspekingur og fornfræðingur (f. 1778).
- 1926 - Harry Houdini, ungverskur töframaður (f. 1874).
- 1945 - Alfred Edward Taylor, breskur heimspekingur (f. 1869).
- 1957 - Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi, íslenskur þýðandi (f. 1886).
- 1984 - Indira Gandhi, indverskur stjórnmálamaður (f. 1917).
- 1986 - Hinrik Frehen, biskup á Íslandi (f. 1917).
- 1993 - Federico Fellini, ítalskur leikstjóri (f. 1920).
- 1993 - River Phoenix, bandarískur leikari (f. 1970).
- 1998 - Hulda Dóra Jakobsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs (f. 1911).
Hátíðisdagar[breyta | breyta frumkóða]
|