Litrófið í sinni fegurstu mynd
Afþreying á Húsavík
Það á enginn að þurfa að láta sér leiðast á Húsavík. Hvalaskoðun, frábær söfn, vandaðar gönguleiðir og glæsilegar verslanir er meðal þess sem hægt er að gera sér til dægradvalar.
Náttúruperlur og menning
Húsavík og nágrenni býður upp á mikið úrval afþreyingar, bæði náttúrlegrar og menningarlegrar. Við mælum með að þú skoðir sem flest, það er af nógu að taka!
Viðburðir
Norðausturhluti Íslands er svo sannarlega rólegt og afslappandi svæði, en þar er þó margt sem kryddar mannlífið. Árlegir viðburðir eru margvíslegir. Skoðaðu dagbókar viðburðir!
Fréttir
Aðalfundur Húsavíkurstofu
Aðalfundur Húsavíkurstofu var haldinn í Hvalasafninu 6. apríl síðastliðinn. Húsavíkurstofa er vettvangur fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Húsavík. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál.
Hvalaskoðunarvertíðin hafin á Húsavík
Hvalaskoðunarvertíðin á Húsavík 2016 hófst formlega í morgun þegar að Náttfari sem er í eigu Norðursiglingar sigldi úr höfn með um það bil 35 farþega um borð. Gestirnir sem komu meðal annars frá Bandaríkjunum, Malasíu og Þýskalandi fengu blíðuveður til að njóta dagsins á Skjálfandaflóa. Read more
Steypireyðarsýning afhjúpuð!
Sagan af steypireyðnum sem rak að landi á Skaga árið 2010 er orðin löng. Eftir langt og strangt ákvörðunarferli varð Hvalasafnið á Húsavík fyrir valinu sem sýningarstaður þessa stærsta dýrs jarðar. Aðeins 10 steypireyðargrindur eru til sýnis í heiminum og frábært að Húsavík sé einn þeirra staða sem nýtur þess heiðurs. Read more
Gönguferðir fyrir ferðamenn
Næsta sumar verður boðið upp á gönguferðir fyrir ferðamenn frá upplýsingamiðstöðinni á Húsavík. Ferðirnar sem hlotið hafa vinnuheitið „Húsavík Walking Tours“ eru á vegum Húsavíkurstofu sem útsetur ferðirnar og sér um framkvæmd þeirra. Read more